Skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað
Samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (46/1980) ber atvinnurekandi ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Áætlunin skal meðal annars fela í sér:
Áætlun um heilsuvernd
Atvinnurekandi ber ábyrgð á að gerð sé áætlun um heilsuvernd sem byggð er á áhættumati þar sem meðal annars kemur fram áætlun um forvarnir, þar á meðal um aðgerðir sem grípa þarf til í því skyni að draga úr atvinnutengdum sjúkdómum og slysum. Áætlunin á að gefa gott yfirlit yfir áhættu- og álagsþætti sem auðveldar markvisst starf og tryggir betri árangur. Áætlun um forvarnir skal byggja á niðurstöðum áhættumats.
Aðkoma Vinnuverndar
Vinnuvernd er viðurkenndur þjónustuaðili Vinnueftirlits ríkisins sem veitir heildstæða þjónustu
á sviði öryggis og heilbrigðis á vinnustöðum.
Við lítum svo á að til þess að áhættumat skili jákvæðum breytingum og
þekkingu
inn í fyrirtæki sé mikilvægt að virkja bæði starfsmenn og
stjórnendur til þátttöku
í áhættumatinu.