Þyngdarstuðull/Body mass index (BMI)

Þú getur reiknað hvort þyngdin sé innan æskilegra marka með því að deila í þyngd þína í kílóum með hæðinni í metrum í öðru veldi (kg/m2). Þannig fæst ákveðinn stuðull sem nefnist BMI (Body Mass Index). Samkvæmt viðmiðunarmörkum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, er vannæring, kjörþyngd, ofþyngd og offita fyrir fullorðna skilgreind á eftirfarandi hátt:

Vannæring Kjörþyngd Ofþyngd Offita
BMI < 18.5  BMI: 18.5 -24.9   BMI: 25.0 - 29.9  BMI ≥ 30 

Rétt er að benda á að stuðullinn tekur ekki tillit til mismunandi líkamsbyggingar fólks. Hann greinir t.d. ekki á milli þyngdar vöðva og fitu þannig að vöðvamikill og grannur einstaklingur getur lent í ofþyngdarhópnum (en vöðvar eru þyngri en fita).

Heimild: Manneldisráð/ Manneldi.is.

 

Hver er þinn BMI stuðull?   

   Fylltu inn þyngd þína og hæð, smelltu svo á hnappinn 'reikna' og BMI stuðull þinn kemur fram.

Þyngd Hæð BMI stuðull þinn

 

Sjá viðmiðunartölur hér:

Viðmiðunartölur

 

 

Untitled Document