Bólusetningar

Inflúensubólusetningar

Inflúensubólusetningar draga úr hættu á sýkingu þann vetur sem bólusett er - og þar með vinnutapi það árið. Ef bólusett er árlega í mörg ár má búast við fækkun inflúensuveikinda yfir ævina.

Læknar og hjúkrunarfræðingar Vinnuverndar annast bólusetningar, koma í fyrirtæki og bólusetja. Fyrirhöfn starfsmanna er því í lágmarki.

Aðrar bólusetningar

Vinnuvernd býður fyrirtækjum upp á bólusetningar fyrir hópa sem starfa í umhverfi þar sem aukin hætta er á smiti. Meðal þeirra hópa eru starfsmenn heilbrigðisþjónustu, lögreglumenn, slökkvilið, starfsmenn við frárennsli og sorphirðu. Helstu sjúkdómar sem bólusett er gegn hjá mismunandi starfshópum eru lifrabólga A og B, stífkrampi o.fl.

Ferðamannabólusetningar

Bólusetningar og ráðgjöf vegna ferða er mikilvægur þáttur í að fyrirbyggja smitsjúkdóma á ferðalögum. Þjónustan er veitt hjá Ferðavernd sem staðsett er í Læknasetrinu í Mjódd.

Lögð er áhersla á að sníða þjónustuna að þörfum hvers og eins hvort heldur er vegna skemmtiferða, íþrótta-, náms- eða ráðstefnuferða, funda-, viðskipta- eða annarra vinnuferða. Sömuleiðis þegar um lengri dvöl er að ræða vegna skólavistar, hjálparstarfs, friðargæslu, vinnu eða starfsemi fyrirtækja í útlöndum o.fl.

Auk bólusetninga er ekki síður mikilvægt að undirbúa ferðafólk með ráðum til að forðast ýmsa kvilla svo sem matarsýkingar, flugnabit og háfjallaveiki og láta það hafa viðeigandi lyf sem óskað er eftir, til dæmis háfjallalyf, lyf gegn malaríu o.fl.

Ferðavernd.is

 

 

 

 

 

Untitled Document