Vinnuvernd - heilsuvernd, vinnuvernd, heilsuefling

Námskeið og fræðsla

Fyrirlestrar

Lífstíll
Fjallað er um lífsstíl og áhrif hans á heilsu og lífsgæði einstaklinga. Áhersla er lögð á þætti sem viðhalda og bæta heilbrigði eins og svefn, næring og hreyfing.

Skyndihjálp
Fjallað um endurlífgun og viðbrögð við slysum eða öðrum bráðavandamálum sem upp kunna að koma á vinnustað og í daglegu lífi.

Líkamsbeiting og vinnutækni
Fjallað er um aðstæður í nútímastörfum og það sem starfsmaðurinn getur gert til að draga úr óæskilegu álagi á stoðkerfið.

Þjálfun líkamans
Fjallað um áhrif hreyfingar og mikilvægi hennar, sem og hvað starfsmaður þarf raunverulega að gera lítið til að hafa heilsusamlegan ávinning af.

Næring, heilsa og lífsstíll
Fjallað um grunnatriði næringarfræðinnar eins og manneldismarkmið, orkuþörf, orkuefni auk atriða sem eru ofarlega á baugi hjá almenningi hverju sinni og geta tengst offitu, megrunarkúrum, neyslu fæðubótarefna o.fl.

Hlé og æfingar
Í fyrirlestrinum er fjallað um hlé og æfingar og mikilvægi þeirra til að bæta líðan.

Vellíðan og vöxtur í starfi
Kjarninn í fyrirlestrinum er sjálfsmynd í vinnunni og uppbyggjandi samskipti á vinnustað. Fjallað um það hvernig sjálfsmynd í vinnunni getur verið öðruvísi en utan vinnunnar og hvað hefur áhrif þar á.

Samskipti á vinnustað
Fjallað er um hvað felst í samskiptum á vinnustað og hvernig má stuðla að góðum starfsanda. Einnig er fjallað um helstu samskiptaleiðir.

Streita og streitustjórnun
Fjallað um orsakir streitu, einkenni og afleiðingar hennar. Í fyrirlestrinum er leitast við að upplýsa starfsmenn um leiðir til þess að draga úr streitu á vinnustað og í einkalífi.

Einelti á vinnustöðum
Fjallað er um einelti og skilgreiningar á því, helstu orsakir, afleiðingar og hvernig skal bregðast við komi einelti upp á vinnustað. Einnig er fjallað um skyldur atvinnurekenda og starfsmanna gagnvart einelti.

Að lifa lífinu hægar
Fjallað um það hvort hægt sé að lifa lífinu hægar en koma jafnframt miklu í verk og hvort raunhæft sé fyrir fólk að ætla sér að lifa lífinu hægar. Tekið er á streitustjórnun og skipulagningu tíma.

Ferðavernd - heilbrigði ferðamanna
Fræðslan er sérsniðin að þörfum hópa sem eiga í hlut hverju sinni. Fjallað er um það sem
ferðamenn þurfa að hafa í huga fyrir í aðdraganda ferðar og þá þætti sem þeir þurfa að varast.

Umhverfi og öryggi á vinnustað
Í fyrirlestrinum er fjallað um hvaða máli umhverfis- og öryggismál skipta fyrir hvern vinnustað.

Gerð áhættumats
Fræðsla fyrir öryggisnefndir, stjórnendur og starfsmenn um gerð áættumats.

Vinnuvernd býður fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum fyrirlestra og námskeið
sem eru sérsniðin að óskum hvers og eins.

 

Untitled Document