Fyrirtækið

Vinnuvernd, heilsuvernd og heilsuefling – vellíðan í vinnu

Vinnuvernd er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði vinnuverndar, heilsuverndar og heilsueflingar. Í dag njóta fjölmörg íslensk fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög þjónustu okkar og þeim fjölgar stöðugt.

Við erum sannfærð um að þjónusta á sviði vinnuverndar og heilsueflingar sé mikilvægur þáttur í því að auka starfsánægju og bæta árangur, öryggi, líðan og heilsufar starfsmanna.

Vinnuvernd er stöðugt að þróa nýjar afurðir og efla þjónustu fyrirtækisins. Vinnuvernd hefur m.a. boðið uppá þjónustu á landsbyggðinni með samstarfi við fagfólk á Akureyri, Ísafirði og Egilssstöðum. 

Vinnuvernd er í samstarfi við Mannvit verkfræðistofu á sviði gæða-, öryggis- og umhverfismála og við Humus ehf. um samstarf á sviði geðheilbrigðismála og stjórnendaþjálfunar.

Trúnaðarlæknisþjónusta Vinnuverndar hefur nýst fjölmörgum fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum vel. Þjónusta Vinnuverndar miðar að því að aðstoða fyrirtæki og starfsmenn þeirra við að bæta öryggi, líðan og heilsufar á vinnustað og á þann hátt að draga úr m.a. fjarvistum.

Ýmis önnur þjónusta okkar hefur notið vinsælda og má þar nefna úttektir á vinnuaðstæðum,
vinnuvistfræðilega ráðgjöf, heilsufarsmælingar, áhættumat, einstaklingsmiðaða streitustjórnun
og fleira. Einnig hafa sérfræðingar Vinnuverndar aðstoðað fjölmörg fyrirtæki við að
skipuleggja heilsueflingu til lengri tíma.

Það er mikilvægt að fyrirtæki velji viðurkennda, ábyrga og trausta þjónustaðila þegar kemur
að því að nýta þjónustu á sviði vinnuverndar.

Vinnuvernd hefur viðurkenningu Vinnueftirlits ríkisins sem fullgildur þjónustuaðili á sviði
vinnu- og heilsuverndar.

 

 

 

 

Untitled Document