Heilsubót Vinnuverndar

Heilsubót – nýtt verkefni sem Vinnuvernd kynnir þar sem við bjóðum fyrirtækjum að setja upp hreyfikeppni. Heilsubót hentar öllum stærðum og gerðum af vinnustöðum og starfsfólki.

Markmið Heilsubótar:

  • Hvetja fólk til að hreyfa sig daglega í a.m.k. 30 mínútur og fær hver og einn stig fyrir hvern unninn hálftíma.
  • Efla hreyfingu á vinnustað, auka samheldni og vera til fyrirmyndar.
  • Að gera hreyfingu að daglegri venju.

Hluti Heilsubótar eru heilsufarsmælingar á vinnustað fyrir og eftir að keppni lýkur, en gaman er að sjá mun á útkomu fyrir og eftir svona keppni. Heilsubótin er EKKI megrunararátak. Hún er hugsuð sem hvatning sem fær fólk til að hreyfa sig á hverjum degi og að gera hreyfingu að daglegum venjum eins og að borða morgunmat og bursta tennur. Mikilvægt er að hreyfingin sé eitthvað sem veitir ánægju og vellíðan.

Á meðan á Heilsubótinni stendur getum við komið með ýmiskonar fyrirlestra, ráðgjöf og erindi og aðstoðað þá sem ekki hreyfa sig reglulega að finna hreyfingu við hæfi. Sem dæmi: svefn og svefnvenjur, lífsstíll og hreyfing, næring og heilsa, stoðkerfisverkir, streita í annríki nútímans.

Vinnuvernd sér um að útbúa flott veggspjald með nöfnum þátttakenda.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Untitled Document