Lúxemburgaryfirlýsingin um heilsueflingu á vinnustað í löndum Evrópusambandsins var gefin út 1997. Í þeirri yfirlýsingu er “heilsuefling á vinnustað sameiginlegt átak vinnuveitenda, starfsmanna og þjóðfélagsins í heild sem miðar að því að bæta heilsu og líðan vinnandi fólks”.

Samkvæmt henni verður þessum markmiðum náð með því að:

  • Bæta vinnuskipulag og vinnuumhverfi
  • Hvetja til virkrar þáttöku
  • Ýta undir þroska einstaklingsins


Heilsuefling er áætlun og framkvæmd til lengri tíma og miðar að því að viðhalda breytingu til batnaðar. Heilsuefling gengur skrefinu lengra en vinnuverndin/heilsuverndin og er meira en lög segja til um enn sem komið er.

Heilsuefling á vinnustöðum er ætlað að efla mannauð vinnustaða með bættri heilsu og líðan.

Hún er því góð fjárfesting í mannauði og ef vel er staðið að heilsueflingunni er hún líkleg til að skila ávinningi fyrir vinnustaði, starfsmenn og samfélagið í heild.

 “Shall we shape Public Health or let the Public shape their own Health?” (Illich, 1975, 1976)

 

 

 

 

 

 

Untitled Document