Markmið heilsuverndar er að stuðla að því að starfsmenn séu verndaðir gegn hvers konar heilsuvá eða heilsutjóni sem stafa kann af vinnu þeirra eða vinnuskilyrðum.

Markmið heilsuverndar er að draga úr fjarvistum frá vinnu vegna veikinda og slysa með því að auka öryggi og viðhalda heilsu starfsmanna á vinnustað og stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna.

Vinnuvernd hefur hlotið viðurkenningu Vinnueftirlits ríkisins sem fullgildur þjónustuaðili á sviði vinnu- og heilsuverndar.

Alhliða heilsuvernd starfsmanna er mikilvægt tæki til að stuðla að vinnuvernd og vellíðan starfsmanna. Í heilsuvernd starfsmanna ber að leggja áherslu á fyrir­byggjandi aðgerðir og hagnýtar upplýsingar til þeirra og stjórnenda.

 

 

 

 

 

 

 

Untitled Document