Vinnuvernd ehf. er þjónustufyrirtæki á sviði vinnuverndar, heilsuverndar og heilsueflingar. Viðskiptavinir okkar eru fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir og beinist þjónustan m.a. að starfsmönnum viðskiptavina.

Vinnuvernd ehf. þjónustar marga af stærstu vinnustöðum landsins en einnig fjölmarga meðalstóra og litla vinnustaði. Hver vinnustaður hefur sínar þarfir og það er okkar hlutverk að uppfylla þær. Því geta allir vinnustaðir fundið þjónustu við hæfi hjá Vinnuvernd.

Það eru mikil verðmæti fólgin í því fyrir atvinnulífið að til sé þjónustufyrirtæki á sviði vinnuverndar, heilsuverndar og heilsueflingar, líkt og Vinnuvernd ehf.


 

 




Hluti af öryggisstefnu fyrirtækja ætti tvímælalaust að vera sá að starfshópurinn sé vel að sér í skyndihjálp. Að kunna að bregðast rétt við á slíkum stundum getur skilið á milli lífs og dauða. Sjá nánar hér.
Einn af mikilvægum þáttum vinnuverndar felst í vinnuvistfræði (Ergonomics/Human Factors) sem er tiltölulega ný hugmyndafræði hérlendis. Hægt er að skilgreina vinnuvistfræði sem vísindin á bakvið notendavæna hönnun. Sjá nánar hér.

 

 


Untitled Document