Læknisskoðanir

Heilbrigði og vellíðan í starfi er sívaxandi þáttur í mannauðsstjórnun fyrirtækja. Reglubundið heilsufarseftirlit leiðir til betra heilsufars starfsmanna og fyrirbyggir í mörgum tilvikum alvarleg veikindi auk þess sem það stuðlar að aukinni starfsgetu, bættri líðan og dregur úr fjarvistum.
Niðurstöður læknisskoðana eru trúnaðarmál viðkomandi starfsmanns og lækna Vinnuverndar.

Læknisskoðun nýrra starfsmanna

Læknisskoðunin, sem er til að meta almennt heilsufar, er hluti af ráðningarferlinu. Tekin er ítarleg heilsufarssaga, framkvæmd nákvæm læknisskoðun og gerðar viðeigandi rannsóknir m.t.t. eðli starfsins og annars sem tilefni er til hverju sinni.

Læknisskoðun við starfsráðningu er mikilvæg sem hluti af ráðningarferli. Þessi athugun getur bæði leitt í ljós vankanta eða óhæfi starfsmanns til ákveðinna starfa, hjálpað stjórnendum við að velja starf eða vettvang fyrir viðkomandi, sem og verið umsækjandanum ómetanleg sem heilsufarsathugun og ráðgjöf.

Starfshæfnismat - starfshæfnisvottorð

Læknar Vinnuverndar framkvæma starfshæfnismat að beiðni stjórnenda hjá þeim fyrirtækjum sem hafa samning um trúnaðarlæknisþjónustu. Fjölmargir kjarasamningar kveða á um að starfsmaður sem verið hefur óvinnufær vegna veikinda eða slysa megi ekki hefja starf að nýju nema trúnaðarlæknir votti að heilsa hans leyfi.

Sérhæfðar og lögbundar læknisskoðanir

Hjá mörgum starfsstéttum er lækniseftirlit lögbundið vegna eðlis starfsins. Einnig getur niðurstaða áhættumats gert læknisskoðun nauðsynlega.

Læknar Vinnuverndar bjóða upp á sérhæfðar skoðanir mismunandi starfsstétta eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um og þörf er á hverju sinni.

Hér er boðið upp á mikilvægan þátt í heilbrigðiseftirliti sem hefur mikla öryggisþýðingu fyrir hinn almenna neytanda ekki síður en að vera góð trygging fyrir vinnuveitandann og stjórnendur.

Heilsufarseftirlit stjórnenda

Tekin er ítarleg heilsufarssaga, framkvæmd nákvæm læknisskoðun og gerðar blóðrannsóknir m.t.t. ýmissa sjúkdóma.

Tekið er hjartalínurit og framkvæmt áreynslupróf af hjartasérfræðingi Vinnuverndar auk annarra rannsókna eftir því sem saga og skoðun gefur tilefni til.
Í Læknasetrinu er aðstaða til læknisrannsókna einstaklega góð, fullkomin tæki og víðtæk sérfræðiþekking til staðar.

Áhættumat hjarta- og æðasjúkdóma

Þessi þjónusta er unnin af hjúkrunarfræðingi og lækni á vinnustað. Framkvæmdar eru
mælingar á áhættuþáttum auk læknisskoðunar. Tekið er hjartalínurit af þeim
sem eru yfir 40 ára og/eða með ættarsögu um hjartasjúkdóma.

Ávinningur starfsmanna og fyrirtækis er ótvíræður af þessari þjónustu. Um er
að ræða umfangsmikið heilsufarseftirlit í forvarnarskyni.

 

 

Untitled Document