Vinnuvernd býður upp á þjónustu fyrir einstaklinga sem er sniðin að þörfum og óskum viðkomandi.

Heilbrigðis- og lífsstílsráðgjöf

Heilbrigðis– og lífsstílsráðgjöf er ný þjónusta sem Vinnuvernd býður upp á. Um er að ræða einstaklingsráðgjöf fyrir þá sem óska eftir persónulegum stuðningi við að efla eigin heilsu. Ráðgjöfin er sniðin að hverjum og einum, eftir því hvar viðkomandi stendur með tilliti til heilsu og lífsstíls. Í samvinnu við ráðgjafa Vinnuverndar eru raunhæf markmið sett og fundnar mögulegar lausnir til að ná þeim. Einnig er í boði eftirfylgd ef óskað er eftir því.

Ráðgjafar Vinnuverndar eru allir háskólamenntaðir og með reynslu af heilbrigðis- og lífsstílsráðgjöf innan heilbrigðiskerfisins sem og á hinum frjálsa markaði. Fullur trúnaður er milli ráðgjafa Vinnuverndar og þeirra sem til þeirra leita og eru engar viðkvæmar persónuuplýsingar skráðar nema með samþykki viðkomandi.

Starfsmenn fyrirtækja sem hafa samning um þjónustu trúnaðarlæknis hjá Vinnuvernd njóta sérstaks afsláttar.

Frekari upplýsingar og tímapantanir í síma 578 0800.
Þjónustan er veitt í Brautarholti 28, 105 Reykjavík, 2. hæð - kort

 

 

 

 

 

 

 

Untitled Document