Greiðsluþátttaka sjúkrasjóða

 

Efling-Stéttarfélag

Skilyrði: Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði. Greitt er allt að 50% af kostnaði í allt að 5 skipti á hverjum 12 mánuðum. Greitt er m.v. innkomin iðgjöld.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
  • Frumrit af dagsettri kvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda og upphæðin sem greidd var.
  • Ljósrit af síðasta launaseðli þar sem styrkur miðast við innkonin iðgjöld til sjóðsins.

Sjá nánar hér

 

VR-Varasjóður

Hluti af sjúkrasjóðsiðgjaldi félagsmanna er lagður inn á sérmerktan reikning sem kallast varasjóður. Viðkomandi félagi hefur síðan val um það á hvern hátt hann nýtir þennan varasjóð. Félagsmenn geta m.a. nýtt varasjóð í Heilbrigðis-og lífsstílsráðgjöf Vinnuverndar ehf.

Greitt er út á föstudögum og skal skila inn umsóknum eigi síðar en á þriðjudeginum.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Greiðslukvittun / staðfesting þarf að fylgja og má vera allt að 24 mánaða þegar sótt er um. Greiðslukvittun verður að vera með stimpli viðkomandi fyrirtækis og nafni og kennitölu félagsmannsins. Umsækjandi verður sjálfur að fylla út og undirrita umsóknareyðblað. Ekki er tekið við umsóknum sem aðrir hafa fyllt út nema með skriflegu umboði umsækjanda.

Athugið
Greiðslur úr varasjóði eru skattskyldar og er staðgreiðsla dregin af við úttekt.

Sjá nánar hér

 

BHM-Sjúkrasjóður

Endurgreitt er að hámarki kr. 50.000 krónur á ári fyrir meðferð hjá viðurkenndum meðferðaraðila, þar með talið Heilbrigðis- og lífsstílsráðgjöf Vinnuverndar.

Sækja þarf um styrkinn á þar til gerðu blaði. Styrkumsóknir eru afgreiddar 1x í mánuði og skal skila inn umsókn f. 10. hvers mánaðar. Að jafnaði er greitt út 24.-26. hvers mánaðar.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

Frumrit sundurliðaðra reikninga sem sannarlega eru greiddir, með nafni umsækjanda. Á reikningnum þarf að vera áritun/stimpill/merki þess er gefur reikninginn út með upplýsingum um nafn, starfsheiti, kennitölu og heimilisfang eða símanúmer. Fjöldi skipta og dagsetningar meðferða eða kaupa á vöru eða þjónustu skal koma fram á reikningi.

Sjá nánar hér

 

 

 

 

 

 

Untitled Document