Sálfræðiþjónusta

Viðtalsmeðferð sálfræðinga

Sálfræðingar sem starfa á vegum Vinnuverndar hafa víðtæka reynslu af ýmiskonar sálfræðistörfum og þekkja til þeirra vandamála sem geta komið upp á vinnustöðum og hjá starfsfólki.

Þau vandamál geta verið af margvíslegum toga og má þar nefna streitu, kulnun í starfi, einelti, kvíða og þunglyndi. Einnig getur starfsfólk þurft á aðstoð að halda við að byggja upp sjálfstraust og við að auka vellíðan og ánægju í starfi.

Sálfræðingar Vinnuverndar veita einnig ráðgjöf vegna erfiðleikatímabila sem upp geta komið hjá fyrirtækjum, til dæmis vegna skipulagsbreytinga, áfalla eða uppsagna.

Einelti - áreiti

Sálfræðingar Vinnuverndar hafa mikla reynslu af úrlausnum og ráðgjöf vegna eineltis- og áreitismála sem upp koma á vinnustað.

Hvert tilvik er metið sérstaklega. Vinnan byggir alla jafna á ráðgjöf til stjórnenda, viðtölum við starfsmenn, samtalsmeðferð fyrir starfsmenn sem tengjast málinu beint og fræðslu fyrir starfsmenn deildar/sviðs/fyrirtækis.

Eineltisáætlun

Einelti er skilgreint, samin stefnuyfirlýsing gegn einelti og sett upp viðbragðsáætlun. Viðbragðsáætlun segir til um hvernig skuli bregðast við ef einelti kemur upp á vinnustað. Markmiðið er að innan vinnustaða verði stuðlað að forvörnum og aðgerðum gegn einelti.

Eineltisáætlun er fylgt eftir og hún kynnt starfsmönnum.

Áfallahjálp og sálræn skyndihjálp

Áfallahjálp miðast að því að koma í veg fyrir og draga úr alvarlegum og langvinnum sálrænum eftirköstum í kjölfar áfalla af ýmsum toga.

Þegar upp koma aðstæður þar sem skyndilegrar íhlutunar er krafist eins og vegna alvarlegra slysa,
dauðsfalla eða annarrar þungbærar reynslu bregðast sálfræðingar við eins fljótt og kostur er og
veita sálræna skyndihjálp, sinna verkstjórn á áfallastað og veita þá eftirfylgd sem þörf er á.
Hlutverk sáfræðinga Vinnuverndar er einnig að vinna með þeim starfsmönnum sem sinna
áfallahjálp og aðstoða þá við þau störf.

 

 

 

 

 

Untitled Document