Samstarfsaðilar
Mannvit


Í maí 2007 gerðu Vinnuvernd og Mannvit verkfræðistofa (þá VGK Hönnun) samstarfssamning um samvinnu á sviði gæða-, öryggis- og umhverfismála. Samningurinn er grundvöllur fyrir víðtæku samstarfi fyrirtækjanna. Mannvit er stærsta verkfræðistofa landsins og hefur á að skipa fjölda sérfræðinga sem koma að vinnuvernd á einn eða annan hátt. Samstarfið við Mannvit er mikill styrkur fyrir Vinnuvernd.

Fara á heimasíðu www.mannvit.is

Humus hf

Í janúar 2008 gerðu Vinnuvernd og Humus ehf samstarfssamning. Segja má að samningurinn sé tvíþættur. Annars vegar mun Högni Óskarsson, geðlæknir og framkvæmdastjóri Humus verða læknum Vinnuverndar til ráðgjafar vegna greiningar og meðferðar varðandi geðheilbrigði starfsmanna fyrirtækja í þjónustu Vinnuverndar. Hins vegar er um að ræða samvinnu um gagnkvæma kynningu og markaðssetningu þjónustu hvors aðila fyrir sig. Meðal þess er Stjórnendaþjálfun eða Executive Coaching sem Humus ehf. býður uppá.

Fara á heimasíðu www.humus.is

Gáski er rótgróin sjúkraþjálfunar- og heilsuræktarstöð sem starfrækt hefur verið í 22 ár og rekur nú starfsstöðvar í Bolholti, Vallakór og í Mjódd. Sjúkraþjálfarar Gáska hafa sinnt viðskiptavinum Vinnuverndar í völdum tilfellum. Gáski leggur áherslu á fræðslu, forvarnir og uppbyggjandi æfingameðferð samhliða meðferð sjúkraþjálfara.

Fara á heimasíðu www.gaski.is

Untitled Document