Ráðgjöf við skipulagningu heilsueflingar á vinnustað

Oft reynist erfiðasta skrefið að hefja heilsueflingu á vinnustöðum og hafa starfsmenn Vinnuverndar sérhæft sig í rágjöf fyrir stór og lítil fyrirtæki um að hefja þá vinnu og framkvæma.

Skoða þarf ýmsar vísbendingar s.s. veikindafjarvistir, starfsmannaveltu, aldur, meta hvað nýtist öllum, meta reglulega og aðlaga aðgerðir reglulega.

Setja þarf skýr markmið og hvernig þeim verður náð, hvað er nú þegar búið að gera, markmið verða að vera mælanleg og raunhæf og reikna þarf með ákveðnum tíma í verkefnið.

Sem dæmi um ferli heilsueflingar á vinnustað er að setja stefnu um heilsueflingu, stofna vinnuhóp á vinnustaðnum og fá stjórnendur til að styðja þá stefnu. Fyrst og fremst er sett stefna um heilsu og velferð starfsmanna og samskiptaferli er þróað innan vinnustaðarins. Til að finna styrkleika og veikleika vinnustaðarins er gert áhættumat og þarfagreining sem fylgt er eftir með ákveðinni forgangsröðun, framkvæmd. Að lokum er árangurinn metinn, málum fylgt eftir og þarfir metnar til lengri tíma.

Dæmi um þjónustu okkar á vinnustöðum eru kannanir og árangursmat, áhættumat, fræðsla og fyrirlestrar, námskeið, heilsufarsskoðanir (skimun), heilsufarsmælingar, heilsufarsmat, læknisskoðanir, hópefli og fleira sem sniðið er að þörfum hvers vinnustaðar.

Dæmi um árangur heilsueflingar eru:
  • Færri veikindafjarvistir
  • Jákvæðara viðhorf
  • Aukin almenn þáttaka
  • Aukin meðvitund stjórnenda og starfsmanna
  • Betri heilsa og aukin vellíðan

Aukin starfsánægja sem hefur keðjuverkun út í samfélagið og er þáttur í að auka
lýðheilsu okkar allra.

 

 

 

 

Untitled Document