Trúnaðarlæknir - þjónusta

Ávinningur af trúnaðarlæknisþjónustu er ótvíræður og gefur stjórnendum og starfsmannahaldi möguleika á óháðu mati á veikindum starfsmanna, meðferðarmöguleikum, horfum og starfshæfni.

Eins veitir hún starfsmönnum möguleika á skjótri þjónustu í veikindum sínum og óháðu áliti læknis. Þjónustan flýtir án efa fyrir bata og veitir skjótari úrlausnir varðandi veikindi og fjarvistir starfsmanna. Meiri líkur eru á að þeir komi fyrr aftur til vinnu og styttir tíma í endurhæfingu eftir veikindin.

Fjarvistir vegna veikinda og slysa kosta fyrirtæki háar upphæðir árlega, ekki síst í fyrirtækjum þar sem stærstur hluti útgjalda er vegna launatengdra gjalda. Hægt er að sýna fram á fækkun fjarvista og aukna starfsánægju hjá fyrirtækjum þar sem starfandi er trúnaðarlæknir.

Hlutverk trúnaðarlækna er margþætt og felst m.a. í því að
  • Veita forráðamönnum fyrirtækja og stofnana ráðgjöf varðandi læknisfræðileg málefni í viðkomandi rekstri.
  • Veita ráðgjöf vegna fjarvista starfsmanna í veikinda- og slysatilfellum, meðal annars varðandi læknisvottorð.
  • Gæta hagsmuna starfsmanna varðandi allt sem gæti spillt heilsu þeirra í starfi. Trúnaðarlæknir vinnur að greiningu og úrbótum slíkra vandamála í samvinnu við starfsmannahald og stjórnendur fyrirtækja.
  • Veita starfsmönnum, sem þess óska, ráðgjöf varðandi eigin heilsufarsvandamál og aðstoða við frekari greiningu og meðferð innan heilbrigðiskerfisins.

Trúnaðarlæknar Vinnuverndar bjóða uppá fasta viðveru fyrir starfsmenn fyrirtækja í Læknasetrinu í Mjódd.
Eitt megin markmið lækna Vinnuverndar er að tryggja starfsmönnum gott aðgengi að þjónustunni auk þess að leysa fljótt og vel úr greiningu þeirra heilsufarsvandamála sem upp kunna að koma.
Trúnaðarlæknir er ávallt bundinn þagnarskyldu varðandi málefni starfsmanna og fer í einu og öllu
eftir ákvæðum siðareglna lækna og læknalaga.

Öll þjónusta trúnaðarlækna Vinnuverndar er innifalin í samningsverði og enginn
viðbótarkostnaður er fyrir skoðanir eða vottorð. Þetta er mjög mikilvægt að hafa
í huga þegar þjónustuaðili er valinn.

 

 

 

 

Untitled Document