Mat á umhverfisþáttum

Inniloft - Loftgæði

Vinnuvernd býður fyrirtækjum og stofnunum upp á mat og ráðgjöf á innanhúsloftgæðum þar sem hita- og rakamælingar fara fram auk mælinga á loftsskiptum með CO2 mæli.

Algengt er að starfsmenn kvarti undan innilofti og einkennum sem þeir rekja til þess. Einkennin geta verið þurrkur í hálsi og munni, varaþurrkur, höfuðverkur og fleira.

Lögð er áhersla á að sníða þjónustuna að þörfum hvers fyrirtækis/stofnunar fyrir sig hvað varðar fjölda mæla og staðsetningu.

Lýsing og birtuskilyrði

Vinnuvernd býður fyrirtækjum og stofnunum upp á mat og ráðgjöf varðandi lýsingu og birtuskilyrði. Gerðar eru mælingar á starfsstöðvum auk þess sem viðtöl við starfsfólkið er mikilvægur þáttur.

Viðeigandi lýsing er háð mörgum skilyrðum eins og kyni, aldri, lita í umhverfinu, endurkasti og dagsbirtu. Aftur á móti getur óviðeigandi lýsing valdið röngum vinnustellingum, þreytu og höfuðverk.

Eftir heimsókn á vinnustaðinn, mælingar og viðtöl við starfsfólkið skilar Vinnuvernd af sér skýrslu til fyrirtækisins/stofnunarinnar sem inniheldur ráðgjöf og leiðir að úrbótum.

Hávaði og heyrnarvernd

Hávaði er einn umhverfisþáttanna sem getur haft hvað mestar afleiðingar á starfsfólk.
Afleiðingarnar geta verið margvíslegar, m.a.

  • Heyrnartap
  • Aukin slysahætta
  • Aukin streita

Vinnuvernd býður upp á mat á hávaða og rágjöf um viðeigandi úrlausnir og viðbrögð.
Einnig býður Vinnuvernd upp á mælingar og mat lækna á heyrn starfsmanna.

 

Untitled Document