Vinnustaðaúttekt / Úttektir á vinnuumhverfi

Athugun á vinnuaðstæðum er kerfisbundin athugun á vinnuumhverfi þar sem blandað er saman greiningu á aðstæðum, fræðslu til starfsfólks og ráðgjöf við stjórnendur. Starfsmenn Vinnuverndar hafa framkvæmt mat á vinnuumhverfi í fjölmörgum starfsgreinum á sl. árum.

Vinnuferlið

Stuttur kynningarfundur
Sameiginlegur kynningarfundur fyrir starfmenn áður en úttekt hefst.

Greining á vinnuaðstæðum
Vinnuaðstaða og líkamsbeiting starfsmanna skoðuð. Umhverfisþættir eru metnir m.t.t. áhrifa á heilsu starfsmanna. Starfsmönnum leiðbeint með stillingar á stólum, hæð og staðsetningu tölvuskjás/skjáa, hæð á vinnuborði o.fl. o.fl.

Skýrslur
Skýrslu er skilað um niðurstöður athugunar og þeim leiðum sem raunhæfar eru til úrbóta.

Fræðslufundur
Á fundinum er fjallað um álagseinkenni tengd vinnu, orsakir þeirra og leiðir til úrbóta. Rík áhersla er lögð á það sem starfsmaðurinn getur gert sjálfur til að bæta vinnutækni og nota þann búnað sem til staðar er á æskilegan máta.

Niðurstöður kynntar stjórnendum
Fundur með stjórnendum þar sem niðurstöður eru kynntar og rætt um raunhæfar lausnir og
hvernig best væri að standa að þeim.

 

 

 

 

 

 

Untitled Document