Vinnuvernd felst í heilsuvernd á vinnustað og snýr að samspili vinnu, umhverfis og einstaklingsins.

Heilsuvernd snýst um forvarnir á vinnustað og er í raun allar aðgerðir eða ráðstafanir sem hafa það markmið að fyrirbyggja eða draga úr hættu á atvinnutengdu heilsutjóni og slysum og stuðla að vellíðan starfsmanna.

Það er á ábyrgð atvinnurekenda að tryggja að öryggi og vinnuaðstæður starfs­manna séu í samræmi við lög og reglur og á ábyrgð starfsmanna að gæta heilsu sinnar og öryggis á vinnustað samkvæmt lögum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Untitled Document