Vinnuvistfræðileg ráðgjöf

Einn af mikilvægum þáttum vinnuverndar felst í vinnuvistfræði (Ergonomics/Human Factors) sem er tiltölulega ný hugmyndafræði hérlendis. Hægt er að skilgreina vinnuvistfræði sem vísindin á bakvið notendavæna hönnun. Einnig má segja að vinnuvistfræðingur aðlagi vinnuna að manninum og vöruna að notandanum. Hjá Vinnuvernd starfar sérfræðingur í vinnuvistfræði og er hann sá eini hérlendis með menntun í vinnuvistfræði með áherslu á heildarhönnun fyrir einstaklinginn (Human Factors for Inclusive Design).

Vinnuvernd hefur nú aukið þjónustu sína með tilkomu vinnuvistfræðilegrar ráðgjafar. Ráðgjöfin tekur meðal annars mið af því að þekkingin sé nýtt við:

        • nýhönnun og endurhönnun húsnæðis
        • skipulag vinnu og vinnuferla
        • við hönnun búnaðar, tækja og ýmissa framleiðsluvara
        • val og/eða staðsetningu á aðbúnaði starfsfólks

Markmiðið er að taka þátt í hönnun og skipulagi á vinnuumhverfi alveg frá grunni en með aðaláherslu á einstaklingana sem eiga eftir að starfa í þessu tiltekna vinnuumhverfi. Þannig getur ráðgjöfin bæði verið gagnleg fyrir hönnuðinn og starfsmanninn þar sem komið er á tengingu þarna á milli.

Reynsla Vinnuverndar er að fyrirtæki geti sparað umtalsverða fjármuni með því að velja þessa leið strax frá byrjun.

Frekari upplýsingar gefur Valdís Brá Þorsteinsdóttir, valdis@vinnuvernd.is

 

 

 

 

 

 

Untitled Document