Ekko vöktun & 

Viðbragðsáætlanir 

Vellíðan í vinnu


Skammstöfunin EKKO stendur fyrir einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi og ber vinnustöðum að hafa aðgerðaráætlun sem tekur á EKKO-málum með skýrum hætti.

Sálfræðiteymi Vinnuverndar sinnir bæði þjónustu þar sem fyrirtækjum er boðin aðstoð við gerð og yfirferð viðbragðsáætlana en einnig tekur að sér að sinna hlutverki í viðbragðsteymum þegar tilkynningar koma fram um mögulegt einelti, kynferðislegra áreitni, kynbundið áreitni og ofbeldi á vinnustað. 


Sálfræðingar Vinnuverndar eru sérhæfðir í erfiðum samskiptamálum, streitu og kulnun og veita ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks.

SENDA FYRIRSPURN   

Viðbragðsáætlanir

​Sálfræðiteymi Vinnuverndar býður fyrirtækjum aðstoð við gerð viðbragðsáætlana gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustað (EKKO). Samkvæmt 65. gr. laga nr. 46/1980 ber atvinnurekendum skylda til þess að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Því er mikilvægt að slík áætlun sé til, að hún sé uppfærð reglulega og að hún sé aðgengileg starfsfólki.

Ekko vöktun


Ekko vöktun, er í höndum sálfræðinga okkar þar sem settur verður upp sérstaktur farvegur í samráði við stjórnendur, þar sem starfsfólk getur sent inn tilkynningar um óæskilega hegðun. Er sú tilkynningagátt vöktuð af sálfræðingi frá Vinnuvernd til að tryggja að starfsfólk geti komið tilkynningum í farveg hjá hlutlausum og óháðum aðila.  

Sálfræðingar

​Eftirfarandi sálfræðingar okkar hafa sinnt þeim ráðgjafastörfum sem nefnd eru hér að ofan, hér gefst þér tækifæri að að kynnast þeim örlítið betur. 

Áslaug Kristinsdóttir,

Sálfræðingur

Áslaug utskrifaðist úr Háskóla Íslands með cand.psych gráðu árið 2007 og hefur síðan þá veitt einstaklingum klíníska meðferð og stjórnendum fyrirtækja ráðgjöf og handleiðslu varðandi félagslega og andlega áhættuþætti á vinnustað. Helstu viðfangsefni eru greiningar á starfsumhverfi, sáttamiðlun, ráðgjöf vegna samskiptavanda, stjórnendahandleiðsla, fyrirlestrar/námskeið og einstaklingsstuðningur. Áslaug hóf störf hjá Vinnuvernd árið 2021.

Inga Valdís Tómasdóttir, 

Cand.psych

Inga útskrifaðist með cand.psych gráðu í klínískri sálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2022. Hún sinnir sálfræðiráðgjöf til einstaklinga ásamt því að fara með fyrirlestra og fræðsluerindi til fyrirtækja. Hún hefur ástríðu fyrir forvarnarstarfi og því að fræða fólk um hin ýmsu málefni sem tengjast andlegri líðan. Hún hóf störf hjá Vinnuvernd árið 2022.

Jakob Gunnlaugsson, 

Sálfræðingur

​ ​Jakob útskrifaðist sem sálfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2010 með áherslu á vinnu- og klíníska sálfræði. Jakob hóf hjá Vinnuvernd 2016 og hefur í síðan veitt stjórnendum ráðgjöf og handleiðlsu varðandi sálfélagslegt vinnuumhverfi á vinnustöðum auk þess að sinna klínískri meðferð einstaklinga. Helstu viðfangsefni í dag eru ráðgjöf til stjórnenda og fyrirtækja, stjórnendahandleiðsla, vinnustaðatgreiningar og einstaklingsviðtöl.

Sigrún E. Arnardóttir, 

Sálfræðingur

Sigrún er klínískur sálfræðingur en hún lauk meistaranámi frá Háskóla Íslands árið 2019. Hún sinnir einstaklingsráðgjöf og stuðningsviðtölum hjá Vinnuvernd ásamt sáttarmiðlun. Hún hóf störf hjá Vinnuvernd árið 2020.