Heilbrigðisskoðanir 

v/ starfsréttinda tengdu flugi

Þitt heilbrigði er öryggi allra um borð


Fluglæknar Vinnuverndar bjóða upp á heilbrigðisskoðanir samkvæmt reglum evrópsku flugöryggisstofnuninnar EASA (1178/2011) vegna útgáfu heilbrigðisskírteina. 

Um er að ræða fjórar mismunandi flokka heilbrigðisskoðanna: 

  • Class I - Atvinnu- & þyrluflugmenn
  • Class II - Einkaflugmenn
  • Class III - Flugumferðastjórar
  • Flugfreyjur & flugþjónar (Cabin crew)

Nánari upplýsingar um hvern og einn flokk ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum er að finna hér fyrir neðan.

BÓKA FLUGSKOÐUN   

Class I

ATPL og CPL

Allir atvinnu- og þyrfluflugmenn þurfa að hafa gilt Class I skírteini við vinnu. Þetta skírteini er með stífustu heilsufarskröfurnar. Sá sem er með Class I heilbrigðisvottorð skal vera andlega og líkamlega heilbrigður til að starfa sem atvinnu- og þyrluflugmenn.

Class II

PPL

Þeir sem vilja fljúga sem einkaflugmenn þurfa að hafa gilt Class II skírteini. Sá sem er með Class II heilbrigðisvottorð skal vera andlega og líkamlega heilbrigður til að fljúga sem einkaflugmaður. Einnig þurfa flugnemar að hafa gilda Class II skoðun til að fljúga sólóflug.

Class III

ATC

Flugumferðastjórar þurfa að hafa gilt Class III vottorð til að mega starfa. Class II skoðun er sambærileg þeirri sem framkvæmd er í Class I enda gerðar sömu kröfur til andlegs og líkamlegs heilbrigðis.

Flugfreyjur & þjónar

​Cabin crew

Heilbrigðisskoðanir fyrir flugfreyjur og flugþjóna ( cabin crew / öryggis- og þjónustuliðar) sem sinna öryggi og þjónustu við farþegar um borð á meðan fartíma stendur.  Flugfreyjur og flugþjónar skulu vera andlega og líkamlega heilbrigð til að starfa um borð í flugvélum 

Hvað þarf ég að hafa meðferðis í skoðun?

  • Mikilvægt er að hafa með sér gild persónuskilríki – vegabréf eða ökuskírteini.
  • Síðasta heilbrigðisvottorð – Þar kemur fram hvenær síðustu rannsóknir voru gerðar auk gildistíma og hvort einhverjar takmarkanir séu til staðar.
  • Upplýsingar um lyfjanotkun. Hvaða lyf viðkomandi er að taka, ef einhver, og upplýsingar um skammta.
  • Gleraugu eða linsur sem viðkomandi notar. Gera þarf sjónmælingu hjá þeim sem nota gleraugu eða linsur að staðaldri. Framkvæmt hjá okkur í Vinnuvernd.
  • Heiti á heilbrigðisstofnun og lækni ef viðkomandi hefur verið til meðferðar frá síðustu skoðun.


Hvað er skoðað?

Heilbrigðisskoðun er ítarleg skoðun sem framkvæmd er af fluglækni og hjúkrunarfræðingi. Hvaða rannsóknir eru gerðar fer eftir tegund heilbrigðisskírteinis auk aldurs viðkomandi. Einnig getur þurft að framkvæma fleiri sérhæfðar rannsóknir ef læknir telur ástæðu til.

Hér er yfirlit yfir þau atriði sem eru skoðuð en mismunandi kröfur geta verið milli einstakra þátta í heilbrigðisskoðunum Class I-III.

  • Almenn heilsufarssaga
  • Sjón (fjarsýni, nærsýni, linsur, augnaðgerðir, litblinda, augnvirkni)
  • Líkamleg skoðun (lungu, hjarta, blóðþrýstingur, kviður, útlimir og taugakerfi)
  • Heyrnarmæling
  • Hjartalínurit (EKG)
  • Lungnastarfsemi (spirometria)
  • Blóðrauði
  • Kólesteról
  • Þvagsýni

Flugnemar

Þeir sem hefja flugnám verða að vera með Class II heilbrigðisvottorð áður en farið er í fyrsta einliðaflugið (sólóflugið).
Mælt er með að allir sem hafa hug á áframhaldandi námi verði sér út um heilbrigðisvottorð áður en haldið er áfram í námi með tilheyrandi kostnaði.
Flugnemar skulu ávallt hafa heilbrigðisvottorð með sér, en heilbrigðisvottorð er hluti af skírteinum flugmanna. Án þess má flugmaður ekki fljúga.

Gildistími

Þú getur komið í endurnýjun á heilbrigðisvottorði allt að 45 dögum áður en núverandi skírteini rennur út án þess að gildistími þess breytist.

Class I

  • Gildir í 12 mánuði fyrir atvinnuflugmenn í einstjórnarloftförum til 40 ára aldurs, eftir það til 6 mánaða.
  • Gildir í 12 mánuði fyrir atvinnuflugmenn í fjölstjórnarloftförum til 60 ára aldurs, eftir það til 6 mánaða.


Class II

  • Gildir í 60 mánuði til 40 ára aldurs.
  • Gildir í 24 mánuði milli 40 – 50 ára aldurs.
  • Gildir í 12 mánuði fyrir 50 + aldur.

Class III

  • Gildir í 24 mánuði til 40 ára aldurs.
  • Gildir í 12 mánuði fyrir 40 + aldur.

Flugliðar

  • Gildir í 60 mánuði (5 ár) óháð aldri.

Hagnýtar upplýsingar

Flug | Samgöngustofa


AMC/GM to Regulation (EU) No 1178/2011 — Initial issue |
DECISION No 2011/015/R

 
Acceptable Means of Compliance (AMC) and Guidance Material (GM) |