Skip to Content

Grunnskoðun

Viltu vita hvernig heilsan þín stendur í dag?

Einföld og fagleg heilsufarsmæling sem gefur þér betri innsýn í heilsuna.

Grunnskoðun gefur þér skýra mynd af helstu áhættuþáttum hjarta- og efnaskiptaheilsu með einföldum mælingum og faglegri ráðgjöf.​

25.900 / kr.
Bóka
  •  Blóðþrýstingur
  •  Blóðrannsókn*
  •  Niðurstöðuviðtal og ráðgjöf
  • * Blóðrannsókn er innifalin í uppgefnu verði Grunnskoðunar. Ekki er um að ræða greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.
Fáðu frekari innsýn fyrir þína heilsu til framtíðar
3

Markmið 

Markmiðið skoðunar er að greina frávik snemma og veita skýra mynd af stöðu heilsunnar. Með niðurstöðum og ráðgjöf færðu betri grunn til að taka upplýstar ákvarðanir um eigin heilsu og lífsstíl til framtíðar.

 

2

Fyrir hverja? 

Hentar einstaklingum sem vilja fylgjast með heilsunni, fá faglega mælingu á lykilþáttum og taka upplýstar ákvarðanir um lífsstíl og heilsu til framtíðar.

1

Afhverju?  

Með einföldum mælingum á blóðþrýstingi, blóðsykri, insúlíni og blóðfitum er hægt að greina frávik snemma og grípa til aðgerða sé þess þörf. 

Skoðunarþættir í Grunnskoðun


 Blóðrannsókn 

Veitir gagnlegar upplýsingar um heilsu, efnaskipti og helstu áhættuþætti lífsstílstengdra sjúkdóma. 

Í Grunnskoðun eru eftirfarandi þættir skoðaðir: 

  • Langtímasykur HBA1C
  • Fastandi blóðsykur
  • Insúlín
  • Kólesteról (Heildarkólesteról, HDL, LDL og Þríglýseríðar)
  Blóðþrýstingur

Einföld mæling sem gefur mikilvægar upplýsingar um heilsu hjarta og æða.

Hækkaður blóðþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma; kransæðasjúkdóma og heilablóðfalls.

Háþrýstingur er oft einkennalaus og getur því haft áhrif á einstaklinginn án þess að einkenni komi fram. 

 Niðurstöðuviðtal og ráðgjöf

Markmiðið er að veita skýra mynd af stöðunni, ræða mögulegar leiðir til að bæta heilsu og draga úr áhættu. Með samtali við heilbrigðisstarfsfólk fær einstaklingurinn betri skilning á eigin heilsu og tækifæri til að spyrja spurninga og fá faglegar ráðleggingar.

 Áhættureiknir

Áhættureiknir Hjartaverndar metur áhættu einstaklings á að fá hjartasjúkdóm á næstu 10 árum og byggir á þeirri þekkingu sem Hjartavernd hefur aflað með öflugu vísindastarfi síðastliðin 50 ár. Aðferðafræðin og áhættumatið eru í samræmi við áhættumat í Evrópu (SCORE, European Society of Caridology). Niðurstaða sem sýnir að áhætta einstaklings sé lítil er þó ekki trygging fyrir að viðkomandi fái ekki hjartasjúkdóm þar sem aðeins er tekið tillit til helstu áhættuþátta sem þekktir eru nú á dögum (Hjartavernd, e.d.).

Ferlið

1

Senda beiðni

2

Blóðrannsókn

3

Viðtal og niðurstöður

Hvernig virkar ferlið?  

Senda beiðni

Þú sendir inn beiðni um bókun í Grunnskoðun á heimasíðu okkar undir tímabókanir eða í gegnum hnappinn hér á síðunni. Hjúkrunarfræðingur mun í framhaldinu úthluta þér tíma í viðtal og ganga frá beiðni fyrir blóðrannsókn. Þegar viðtalstíma hefur verið úthlutað færð þú sendan staðfestingarpóst um tímabókun.

Hvert mæti ég í blóðrannsóknina?  

Í kjölfar bókunar færð þú tilkynningu þegar blóðrannsóknarbeiðni til Sameindar hefur verið gerð, þar sem þú getur mætt í blóðrannsóknina. Sameind er staðsett á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu en frekari upplýsingar um staðsetningar getur þú séð á www.sameind.is. Þú þarft ekki að panta tíma í blóðrannsóknina en mikilvægt er að þú mætir fastandi og því ákjósanlegast að ljúka við blóðrannsóknina að morgni. 

Í framhaldi af blóðrannsókn   

Að lokinni blóðrannsókn mætir þú í viðtalstíma sem þér hefur verið úthlutað þar sem farið er yfir niðurstöður blóðrannsóknar og frekari íhlutun ákveðin.

Praktískar upplýsingar

Hvar fer viðtalið fram?  

  • Viðtalið fer fram í Vinnuvernd - Holtasmára 1 / 8.hæð, 201 Kópavogur. 

Hvað tekur viðtalið langan tíma?  

  • Hvert viðtal og yfirferð mælinga tekur um 20 mínútur.