Skip to Content

Sálfræðiviðtöl 

Vinnustaðir eru nú í auknum mæli að bjóða starfsfólki upp á stuðning og ráðgjöf hjá sálfræðingi til að bæta líðan sína. Vinnuvernd býður upp á einstaklingsviðtöl fyrir starfsfólk fyrirtækja sem eru í samningsþjónustu. 

Fagleg aðstoð fyrir andlega vellíðan

Sálfræðiviðtöl veita faglegan stuðning og aðstoð við að vinna úr tilfinningalegum áskorunum, bæta líðan og styrkja einstaklinga í daglegu lífi. Í trúnaðarsamtali við sálfræðing færð þú tækifæri til að skoða tilfinningar, hugsanir og hegðunarmynstur með markvissum aðferðum sem stuðla að jákvæðri þróun.

Sálfræðiviðtöl geta hentað fyrir þá sem vilja vinna með meðal annars:

  • Kvíða og streitu
  • Þunglyndi og vanlíðan
  • Sjálfsmynd og sjálfstraust
  • Áfallavinnu og sorgarferli
  • Samskipti og sambönd
  • Lífsstílsbreytingar og persónulegan vöxt

Viðtölin eru sniðin að þínum þörfum og veita öruggt rými þar sem þú getur unnið að bættum lífsgæðum með faglegri leiðsögn.

Sérstök áhersla er á að biðtími sé í algjöru lágmarki. 


Sálfræðingar

Eftirfarandi sálfræðingar okkar sinna sálfræðiviðtölum og handleiðslu, hér gefst þér tækifæri að að kynnast þeim örlítið betur. 


Áslaug Kristinsdóttir,

Sálfræðingur og ráðgjafi í mannauðsmálum

Áslaug útskrifaðist frá Háskóla Íslands með cand.psych. gráðu árið 2007 og hefur síðan þá veitt stjórnendum fyrirtækja ráðgjöf og handleiðslu varðandi félagslega og andlega áhættuþætti á vinnustað. Helstu viðfangsefni eru greiningar á starfsumhverfi, sáttamiðlun, ráðgjöf vegna samskiptavanda, stjórnendahandleiðsla, fyrirlestrar/námskeið og einstaklingsstuðningur. Ásamt því hefur hún sinnt klínískri meðferð einstaklinga.Áslaug hefur hlotið viðurkenningu sem sérfræðingur í vinnuvernd, sótt ýmis námskeið og vinnustofur tengdu félagsleg og andlegu vinnuumhverfi og lokið námi í sáttamiðlun.

Jakob Gunnlaugsson, 

Sálfræðingur og ráðgjafi í mannauðsmálum

Jakob útskrifaðist sem sálfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2010 með áherslu á vinnu- og klíníska sálfræði. Hann er teymisstjóri sálfræðinga hjá Vinnuvernd og hans helstu verkefni eru að veita stjórnendum ráðgjöf og handleiðslu varðandi sálfélagslegt vinnuumhverfi á vinnustöðum, vinnustaðagreiningar og einstaklingsviðtöl. Jakob hefur hlotið viðurkenningu sem sérfræðingur í vinnuvernd. 


Sigrún E. Arnardóttir, 

Sálfræðingur

Sigrún er klínískur sálfræðingur en hún lauk meistaranámi frá Háskóla Íslands árið 2019. Hún sinnir einstaklingsráðgjöf og stuðningsviðtölum hjá Vinnuvernd ásamt sáttarmiðlun. Hún hóf störf hjá Vinnuvernd árið 2020. Sigrún hefur einnig lokið námi frá sáttarmiðlunarskólanum. 

Sigrún er með starfsstöð bæði á Selfossi og Reykjavík.


Sigurlaug Lilja Jónasdóttir, 

Sálfræðingur og ráðgjafi í mannauðsmálum

Sigurlaug útskrifaðist með cand. psych. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2013 og hefur síðan þá starfað sem klínískur sálfræðingur. Hún hefur unnið á bæði Geðsviði Landspítala og Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins að sinna bæði einstaklings- og hópmeðferð, auk þess að hafa verið sérfræðingur og verkefnastjóri hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Hennar helstu verkefni hjá Vinnuvernd eru einstaklingsviðtöl, fyrirlestrar/námskeið og ýmiskonar ráðgjöf og handleiðsla.

Sigurlaug hefur sótt ýmis námskeið, ráðstefnur og vinnustofur tengdar andlegu- og félagslegu vinnuumhverfi.



Sálfræðiviðtöl
Handleiðsla
Mannauðsráðgjöf
Fræðsla & námskeið