Fara í efni
Bólusetningar · Haust 2026

Inflúensu­bólusetning á vinnustaðnum þínum

Hjúkrunarfræðingar Vinnuverndar koma til ykkar og bólusetja starfsfólk á staðnum – með lágmarksröskun á starfseminni. Skráning fyrir veturinn 2026–2027 er hafin.


Tímabil Haust 2026
Staðsetning Á ykkar vinnustað Ein eða fleiri starfsstöðvar
Framkvæmd Hjúkrunarfræðingar Frá Vinnuvernd
Verð 4200 kr. á sprautu
Þjónustan

Vernd fyrir starfsfólkið og starfsemina

Á hverju hausti bjóðum við fyrirtækjum og stofnunum inflúensubólusetningu á vinnustaðnum. Þú bókar, við skipuleggjum heimsóknina og hjúkrunarfræðingur mætir á staðinn á umsömdum tíma.

Færri veikindadagar Árleg bólusetning er einföld forvörn yfir flensutímann.
Allt á einum stað Skipulag, bóluefni, framkvæmd og upplýsingar til starfsfólks.
Hjúkrunarfræðingur Vinnuverndar ræðir við starfsmann
Ferlið

Svona fer þetta fram í þremur skrefum

1
Þú bókar Tengiliður skráir vinnustaðinn í bókunargátt Vinnuverndar.
2
Tímabókun staðfest Tengiliður fær staðfestingu og hagnýtar upplýsingar til að senda starfsfólki.
3
Bólusetning á staðnum Hjúkrunarfræðingur frá Vinnuvernd mætir og bólusetur starfsfólk.


Við mælum með að mæta í opinn tíma hjá Vinnuvernd, Holtasmára 1, 8. hæð. Ekki þarf að skrá sig fyrir fram. Reikningur vegna bólusetningarinnar er sendur á vinnustaðinn.

  • Þriðjudagur 17. nóvemberkl. 08:30–12:00
  • Miðvikudagur 25. nóvemberkl. 08:30–12:00
  • Miðvikudagur 2. desemberkl. 08:30–12:00
  • Þriðjudagur 8. desemberkl. 13:00–15:30

Vinnuvernd býður ekki upp á Covid-bólusetningar samhliða inflúensubólusetningum á vinnustað. Samkvæmt leiðbeiningum sóttvarnalæknis verður ekki átak í Covid-bólusetningum samhliða inflúensubólusetningum þetta haustið.

Einstaklingar eldri en 75 ára og einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma eru hvattir til að leita til heilsugæslunnar ef þeir óska eftir bólusetningu gegn Covid.

Ofnæmislyf eru ekki frábending fyrir inflúensubólusetningu. Láttu þó hjúkrunarfræðinginn vita ef þú ert með alvarlegt eggjaofnæmi eða hefur fengið alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningu áður.

  • Hver sprauta4.200 kr.
  • Akstur innanbæjar5.300 kr.
  • Akstur utan höfuðborgarsvæðis5.300 kr.
  • Vitjunargjald ef bólusetningar eru færri en 104.100 kr.
Hjúkrunarfræðingur Vinnuverndar spjallar við starfsmann í móttöku