Fara í efni
Spurningar og svör

Inflúensubólusetning á vinnustaðnum


Algengar spurningar


Við mælum með að mæta í opinn tíma hjá Vinnuvernd, Holtasmára 1, 8. hæð. Ekki þarf að skrá sig fyrir fram. Reikningur vegna bólusetningarinnar er sendur á vinnustaðinn.

  • Þriðjudagur 17. nóvember kl. 08:30–12:00
  • Miðvikudagur 25. nóvember kl. 08:30–12:00
  • Miðvikudagur 2. desember kl. 08:30–12:00
  • Þriðjudagur 8. desember kl. 13:00–15:30

Vinnuvernd býður ekki upp á Covid-bólusetningar samhliða inflúensubólusetningum á vinnustað. Samkvæmt leiðbeiningum sóttvarnalæknis verður ekki átak í Covid-bólusetningum samhliða inflúensubólusetningum þetta haustið.

Einstaklingar eldri en 75 ára og einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma eru hvattir til að leita til heilsugæslunnar ef þeir óska eftir bólusetningu gegn Covid.

Ofnæmislyf eru ekki frábending fyrir inflúensubólusetningu. Láttu þó hjúkrunarfræðinginn vita ef þú ert með alvarlegt eggjaofnæmi eða hefur fengið alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningu áður.

  • Hver sprauta4.200 kr.
  • Akstur innanbæjar5.300 kr.
  • Akstur utan höfuðborgarsvæðis5.300 kr.
  • Vitjunargjald ef bólusetningar eru færri en 104.100 kr.

Vinnuvernd býður ekki upp á lungnabólgubólusetningar samhliða inflúensubólusetningum á vinnustað. Hægt er að bóka tíma í lungnabólgubólusetningu á heimasíðu Vinnuverndar: Bólusetning v/ ferðalaga.

Bólusetning gegn inflúensu er ráðlögð fyrir barnshafandi konur þar sem þær eru í aukinni hættu á að veikjast alvarlega ef þær smitast af inflúensu. Bólusetning er ráðlögð á hvaða stigi meðgöngu sem er og getur gagnast þó inflúensufaraldur sé hafinn. Bólusetningin veitir einnig nýburanum ákveðna vernd fyrstu mánuði ævinnar. 

Ef engar aukaverkanir hafa komið fram eftir inflúensubólusetningu, svo sem hiti eða roði eða bólga á stungustað, og líðan er góð, er ekkert því til fyrirstöðu að gefa blóð eftir bólusetningu.

Meðferð einstaklinga á ónæmisbælandi lyfjum getur verið mismunandi. Við ráðleggjum að leita upplýsinga hjá þeim lækni sem ber ábyrgð á lyfjameðferðinni um hvort og hvenær inflúensubólusetning sé ráðlögð.

Inflúensa getur valdið alvarlegum veikindum, sérstaklega hjá ungum börnum. Börn frá 6 mánaða aldri geta fengið inflúensubólusetningu á heilsugæslu. Sóttvarnalæknir mælir með að börn með undirliggjandi sjúkdóma eða í nánum tengslum við viðkvæma einstaklinga séu í forgangi fyrir inflúensubólusetningu (ráðleggingar haust 2025).

Opnir tímar verða hjá Vinnuvernd, Holtasmára 1, 8. hæð, eftirfarandi daga: 

  • Þriðjudagur 17. nóvember kl. 08:30–12:00 
  • Miðvikudagur 25. nóvember kl. 08:30–12:00 
  • Miðvikudagur 2. desember kl. 08:30–12:00 
  • Þriðjudagur 8. desember kl. 13:00–15:30

Ekki er þörf á að skrá sig fyrir fram í opna tíma.