Greining á vinnuumhverfi
Andlegir og félagslegir áhættuþættir á vinnustað
Atvinnurekandi ber ábyrgð á því að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað skv. lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (46/1980). Sú áætlun er mikilvægur þáttur í vinnuverndarstarfi og er tilgangur að stuðla að vellíðan, bættri heilsu og öryggi starfsmanna.
Sálfræðingar Vinnuverndar hafa hlotið viðurkenningu sem sérfræðingar um gerð áætlunar um öryggi á heilbrigði á vinnustöðum með sérstaka áherslu á áhættuþætti tengda félagslegum og andlegum þáttum. Þessir þættir eru t.a.m um álag og kröfur í starfi, líðan starfsmanna, stjórnendahætti, samskipti á vinnustað og EKKO (einelti, kynferðislegri/kynbundinni áreitni, ofbeldi).
Nýttar eru tvennskonar aðferðir við framkvæmd greininga á starfsumhverfi sem hægt er að sníða að þörfum vinnustaða hverju sinni:
- Rafrænar kannanir sem sendar eru út á starfsmannahópinn.
- Einstaklingsviðtöl við starfsmenn þar sem spurt er nánar um þessa þætti í vinnuumhverfinu.

Kulnun í starfi
Kulnun er afleiðing af langvarandi streitu á vinnustað sem ekki hefur verið tekist á við á árangursríkan hátt. Þó kulnun sé ekki algeng á Íslandi er mikilvægt að stjórnendur hugi að forvarnarstarfi til að draga úr líkum á kulnun starfsfólks. Kulnun þróast yfir langan tíma og því eru mörg tækifæri fyrir vinnustaði til að grípa inn í þá þróun og stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu þar sem fólki líður vel.
Sálfræðiteymi Vinnuverndar býður upp á ýmsa þjónustu á þessu sviði. Meðal annars:
- Fræðslu fyrir starfsfólk og ítarlegri fræðslu fyrir stjórnendur.
- Einstaklingsviðtöl sem hafa þann tilgang að aðstoða starfsmann/stjórnanda að greina streituvalda, finna leiðir og efla bjargráð til að styrkja sig.
- Rafrænar kannanir til að meta upplifun starfshóps á álagi og líðan í vinnu.

Sálrænn stuðningur
í kjölfar áfalla eða erfiðleikar
Stuðningur við starfsfólk er mikilvægur þegar upp koma erfiðar aðstæður á vinnustað eða starfsfólk verður fyrir áfalli. Slíkt getur vakið mjög ólík tilfinningaviðbrögð hjá starfsfólki sem erfitt getur verið að takast á við.
Sálfræðiteymi Vinnuverndar hafa mikla reynslu í að veita starfsfólki sálrænan stuðning í slíkum aðstæðum. Markmiðið er að skapa öruggan vettvang fyrir starfsfólk að koma saman til að veita hvort öðru stuðning, róa uppnám, fræða um eðlileg viðbrögð í óeðlilegum aðstæðum og veita stuðning og ráðgjöf.
Við erum einnig stjórnendum innan handar og veitum þeim ráðgjöf við slíkar aðstæður.

Samskiptasáttmáli
Góð og uppbyggileg samskipti á vinnustað er lykilþáttur í starfsánægju og vellíðan í vinnu. Ýmsar óformlegar venjur geta skapast í samskiptum milli starfsfólks og geta ýmist haft jákvæð eða neikvæð áhrif á starfsanda. Neikvæð samskipti eru ein helsta ástæða fyrir vanlíðan og streitu starfsfólks á vinnustaðnum.
Vinnustaðir eru nú í ríkari mæli að koma sér upp samskiptasáttmála sem eru eins konar leiðarljós í samskiptum og framkomu starfsfólks vinnustaðar. Starfsfólkið sjálft kemur að gerð sáttmálans ásamt stjórnendum og er markmið með sáttmálanum að efla jákvæð og uppbyggileg samskipti á vinnustaðnum, auka traust milli starfsmanna og auka vellíðan.
Vinnuvernd býður upp á aðstoð við gerð samskiptasáttmála með starfsfólki og stjórnendum vinnustaðar. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt og geti þannig haft áhrif á það hvernig línur eru dregnar í samskiptum í starfshópnum.

Sáttamiðlun
Ágreiningur getur komið upp á vinnustöðum og er oft leystur á farsælan hátt innan vinnustaðar. Í einhverjum tilvikum nær ágreiningur að stigmagnast og verða viðvarandi og erfiður. Það getur haft veruleg áhrif á líðan, starfsanda og starfsánægu á vinnustaðnum. Þá getur verið gagnlegt að fá utanaðkomandi aðstoð frá óháðum aðila til að leiða samtal milli málsaðila í þeim tilgangi að finna einhvers konar sátt.
Vinnuvernd býður vinnustöðum upp á sáttamiðlun og hafa sálfræðingarnir lokið námi í sáttamiðlun hjá Sáttamiðlaraskólanum.
Sáttamiðlun er aðferð þar sem óháður og hlutlaus ráðgjafi aðstoðar starfsmenn sem eiga í deilum að finna lausn á ágreiningi sínum eða erfiðum samskiptum. Sáttamiðlari leiðir samtal milli starfsmanna og aðstoðar þá í að finna sjálfir samkomulag um lausn á ágreiningi. Forsenda fyrir sáttamiðlun er að starfsmenn taki sjálfviljugir þátt og að samtalið fari fram í trúnaði.

Önnur mannauðsráðgjöf
Sálfræðiteymi Vinnuverndar veitir stjórnendum vinnustaða fjölbreytta mannauðstengda ráðgjöf. Oft á tíðum er sú ráðgjöf sérsniðin að þörfum vinnustaðarins, starfsfólks og stjórnenda. Ef þú ert með verkefni sem þig eða starfsfólki þínu vantar stuðning við endilega hafðu samband og við sjáum hvort við getum ekki aðstoðað þinn vinnustað.

