Skip to Content

Heilbrigðisþjónusta

Starfstengd heilbrigðisþjónusta sem stuðningur við þinn vinnustað

Vinnuvernd sinnir fjölbreyttri ráðgjöf og þjónustu vegna heilbrigðis- og læknisfræðilegra málefna fyrir vinnustaði.  

Vinnuvernd er viðurkenndur þjónustuaðili á sviði heilbrigðismála af Vinnueftirlitinu ásamt því að hafa tilskyld leyfi frá Embætti Landlæknis um rekstur heilbrigðisþjónustu á Íslandi. 

Hér fyrir neðan er hægt að skoða þjónustuframboð heilbrigðissviðs í fyrirtækjaþjónustu Vinnuverndar en við höfum skipt því niður í nokkra yfirflokka til að auðvelda yfirsýn yfir þjónustuframboðið. 



 Trúnaðarlæknisþjónusta

Trúnaðarlækningar eru læknisþjónusta sem er tilkomin vegna þarfar á að skapa vettvang fyrir tjáskipti vegna heilsufars og/eða heilsufarsvanda starfsmanna, þar sem gætt er trúnaðar við starfsmann annars vegar og vinnustaðar hins vegar. 

Meðal hlutverka trúnaðarlæknis:

  • Veita framkvæmdastjóra / mannauðsstjóra stuðning og ráðgjöf. 
  • Veita stjórnendum ráðgjöf varðandi læknisfræðileg málefni. 
  • Veita ráðgjöf vegna fjarvista starfsmanna í veikinda- og slysaforföllum og meta starfshæfni starfsmanna  í samræmi við þær reglur sem settar eru í samvinnu við trúnaðarlækni. 
  • Veita starfsmönnum, sé eftir því óskað af stjórnendum, ráðgjöf varðandi eigin heilsufarsvandamál s.s. atvinnutengd vandamál, andleg vandamál og áfengis- og vímuefnavandamál.

LESA MEIRA  

 Almenn læknisþjónusta

 Almenn læknisþjónusta Vinnuverndar er þjónustuleið þar sem fyrirtæki, í þjónustu hjá Vinnuvernd, bjóða starfsfólki sínu upp á læknisþjónustu í formi opinna tíma. 

Læknar Vinnuverndar taka á móti starfsmönnum á ákveðnum tímum í höfuðstöðvum Vinnuverndar. Fyrir stærri fyrirtæki eða stofnanir, sem hafa viðeigandi aðstöðu, er mögulegt að læknir mæti á vinnustaðinn á ákveðnum tímum og sinni móttöku þar. 

Meðal hlutverka almennrar læknisþjónustu: 

  • Tryggja starfsfólki aðgang að fyrstu skoðun á heilbrigðisvanda hratt og örugglega.
  • Fyrsta greining á einkennum/veikindum viðkomandi starfsmanns. 
  • Aðstoða við endurnýjun lyfja.
  • Aðstoða starfsmann að komast áfram til sérfræðings eða leiðbeina með næstu skref til að tryggja að viðkomandi fái rétta meðhöndlun við þeim einkennum/veikindum sem um ræðir.

LESA MEIRA

 Heilsufarsmælingar og heilbrigðisskoðanir

Fjölbreyttar heilsufarsskoðanir þar sem fólk fær ráðgjöf um heilsueflandi þætti frá hjúkrunarfræðingi, lækni og/eða sálfræðingi. Auk fræðslu varðandi þá þætti sem hafa áhrif á vellíðan og andlega líðan okkar í leik og starfi.

Í lok skoðunar fá einstaklingar niðurstöður sínar afhentar, en stjórnendur vinnustaða fá samantektar skýrslu á niðurstöðum starfshópsins í heild. Stjórnendur geta þannig fengið yfirsýn yfir hvar þeirra starfsfólk stendur með tilliti til álags í starfi, streitu og fleiri heilsutengdra þátta. Ásamt því að fá yfirlit yfir hvar þeirra starfshópur stendur samanborið við önnur fyrirtæki sem nýta sér sömu þjónustu Vinnuverndar.

Vinsælustu heilsufarsmælingar okkar: 

  • Heilsufarsmat - bronz
  • Heilsufarsmat - silfur

LESA MEIRA

 Fjarvistarskráning og samtöl

Fjarvistarskráning auðveldar vinnustöðum að halda utan um fjarvistir starfsfólks ásamt ástæðum fjarvista.  Stjórnendur fá sendar fjarvistarskýrslur sem auðveldar þeim yfirsýn og hvort tilefni sé til að eiga samtal við starfsfólk vegna fjarvista. Fjarvistarskráningin er í höndum hjúkrunarfræðinga Vinnuverndar sem bjóða starfsfólki sem hringja inn ráðgjöf varðandi heilsufar, heilbrigði og liðan. 

Gott samstarf og samvinna er mikilvægur þáttur í fjarvistarskráningunni. Það leiðir af sér aukinn árangur með því að halda vel utan um starfsfólk, fækka fjarvistum og stuðla að vellíðan þeirra í starfi.

LESA MEIRA  

 Atvinnutengdar heilbrigðisskoðanir

Sérfræði- og fluglæknar Vinnuverndar bjóða upp á fjölbreytt úrval læknisskoðana er tengjast starfsréttindum í vissum störfum. Má þar á meðal nefna heilbrigðisskoðanir vegna atvinnuréttinda samkvæmt reglum evrópsku flugöryggisstofnun EASA (1178/2011) og eins vegna atvinnu og  starfsréttinda til starfa á sjó samkvæmt reglum Samgöngustofu. 

Einnig bjóðum við upp á heilbrigðisskoðanir tengdum útgáfu heilbrigðisskírteina vegna starfsréttinda á ýmis konar vinnuvéla samkvæmt reglum Vinnueftirlitsins. 

Meðal atvinnutengdra heilbrigðisskoðana:

  • Flugskoðanir
  • Sjómannaskoðanir
  • Sérsniðnar heilbrigðisskoðanir fyrir ákveðnar starfsstéttir t.d lögreglu og slökkvilið.
  • Heilbrigðisskoðanir vegna réttinda á vinnuvélar

LESA MEIRA

 Heilbrigðisskoðanir v/umhverfisþátta

Við bjóðum uppá fjölbreytt úrval af ítarlegum heilbrigðis- og læknisskoðunum tengdum mögulegum skaðlegum umhverfisþáttum á vinnustað.

Meðal heilbrigðisskoðana af þessu tagi má nefna:

  • Heilbrigðisskoðanir v/ myglu og/eða rakaskemmda
  • Heilbrigðisskoðanir v/ asbest
  • Heilbrigðisskoðanir v/ blý 

LESA MEIRA



 Bólusetningar og vímuefnapróf

Bólusetningar geta verið mikilvægur þáttur fyrir velferð og öryggi einstaklinga. Við bjóðum fyrirtækjum og einstaklingum upp á fjölbreytta þjónustu á sviði bólusetninga, allt frá inflúensubólusetningum, til sérhæfðrar þjónustu vegna áhættustarfa eða ferðalaga. 

Eins bjóðum við fyrirtækjum og einstaklingum upp á ávana- og fíkniefnaprófanir. Þessi þjónusta felur í sér prófanir á áfengisnotkun, fíkniefnanotkun og notkun annarra ávanabindandi efna í samráði við vinnustaði.

Bólusetningar - LESA MEIRA  

Vímuefnapróf - LESA MEIRA  

 Fræðsla og námskeið

Heilbrigðissvið Vinnuverndar býður upp á fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf til fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga um heilbrigðistengd málefni 

Má þar á meðal nefna:

  • Skyndihjálp 
  • Smitsjúkdómar barna
  • Breytingaskeið kvenna
  • Heilbrigður lífsstíll
  • Svefn 
  • Hreyfing

LESA MEIRA