Skip to Content

Eftirfylgni í kjölfar heilsufarsmælingar


Heilsufarsmæling segir margt – en rétt eftirfylgni getur skipt sköpum

Niðurstöður utan viðmiðunarmarka? Fáðu skýrari svör og faglega ráðgjöf.

Heilsufarsmæling getur gefið mikilvægar vísbendingar um heilsuna. Ef niðurstöður sýna frávik frá viðmiðunarmörkum býður Vinnuvernd upp á eftirfylgni sem hjálpar þér að skilja niðurstöðurnar betur og meta næstu skref.

Eftirfylgni er sérstaklega ráðlögð þegar mælingar benda til aukinnar áhættu vegna:

  • Kólesteróls
  • Blóðsykurs
  • Blóðþrýstings


16.900 / kr

Panta

  •  Yfirferð á niðurstöðum blóðrannsóknar
  •  Blóðþrýstingur
  •  Viðtal við hjúkrunarfræðing
  •  Einstaklingsmiðuð ráðgjöf út frá niðurstöðum
  • Athugið: Blóðrannsókn er framkvæmd hjá Sameind og greiðist samkvæmt greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands. Blóðrannsókn er ekki innifalin í verði eftirfylgniviðtals. 

Nýttu þínar niðurstöður til jákvæðra breytinga í framtíðinni

3

Markmið 

Með eftirfylgni er þér boðið í blóðrannsókn og viðtal til að fá: 

  • skýrari yfirsýn yfir niðurstöðurnar þínar
  • faglega ráðgjöf frá hjúkrunarfræðingi
  • stuðning við að grípa inn í tímanlega
  • leiðbeiningar um heilsueflandi breytingar sem henta þér
  • möguleika á frekari eftirfylgni ef þörf krefur

 

2

Fyrir hverja? 

Þjónustan er í boði fyrir starfsfólk sem fer í heilsufarsmælingu í gegnum vinnustað sinn á vegum síns fyrirtækis.

Frávik í mælingum þurfa ekki alltaf að þýða alvarlegan vanda, en þau geta verið mikilvægt merki um að ástæða sé til að skoða stöðuna betur. 

1

Afhverju?  

Með eftirfylgni færðu tækifæri til að fara nánar yfir niðurstöður, fá blóðrannsókn og ræða við hjúkrunarfræðing um hvað sé mikilvægt að hafa í huga til að styðja við heilsu þína til framtíðar. 

Skoðunarþættir í Eftirfylgni
 Blóðrannsókn 

Veitir gagnlegar upplýsingar um heilsu, efnaskipti og helstu áhættuþætti lífsstílstengdra sjúkdóma. 

Í Eftirfylgni eru eftirfarandi þættir skoðaðir: 

  • Langtímasykur HBA1C
  • Fastandi blóðsykur
  • Kólesteról (Heildarkólesteról, HDL, LDL og Þríglýseríðar)
 Blóðþrýstingur

Einföld mæling sem gefur mikilvægar upplýsingar um heilsu hjarta og æða.

Hækkaður blóðþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma; kransæðasjúkdóma og heilablóðfalls.

Háþrýstingur er oft einkennalaus og getur því haft áhrif á einstaklinginn án þess að einkenni komi fram. 

 Niðurstöðuviðtal og ráðgjöf

Markmiðið er að veita skýra mynd af stöðunni, ræða mögulegar leiðir til að bæta heilsu og draga úr áhættu. Með samtali við heilbrigðisstarfsfólk fær einstaklingurinn betri skilning á eigin heilsu og tækifæri til að spyrja spurninga og fá ráðleggingar.


1

Heilsufarsmat

2

Beiðni um eftirfylgni

3

Blóðrannsókn

3

Viðtal og niðurstöður

Hvernig virkar ferlið?  

Fagteymi Vinnuverndar hefur sett fram ákveðin viðmið fyrir því hverjum og við hvaða aðstæður einstaklingum er boðin eftirfylgni á eftirfarandi þáttum:  

  • Kólesteról 
  • Blóðsykur 
  • Blóðþrýstingur

Komi fram í heilsufarsmati eða ástandsskoðun hjá Vinnuvernd að niðurstöður mælinga séu utan þeirra viðmiðunarmarka sem miðað er við, stendur viðkomandi einstaklingi til boða frekari eftirfylgni. Eftirfylgni er veitt að beiðni einstaklings og er á hans eigin kostnað.

Í eftirfylgni er þér boðið að fara í blóðrannsókn og í kjölfarið fer fram viðtal þar sem farið er yfir niðurstöður blóðrannsóknar ásamt mögulegum lífsstílsbreytingum og frekari íhlutun ákveðin.   

Við bjóðum þér einnig að koma í endurtekna eftirfylgni þar sem blóðrannsókn er endurtekin ásamt því að ný markið eru sett hvað varðar heilsueflandi lífsstíl. Tímamörk á endurtekinni eftifylgni eru unnin í samráði við fagteymi Vinnuverndar.



Hvert mæti ég í blóðrannsóknina?  

Við bókun er gerð blóðrannsóknarbeiðni til Sameindar, þar sem þú getur mætt í blóðrannsóknina. Sameind er staðsett á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu en frekari upplýsingar um staðsetningar getur þú séð á www.sameind.is. Þú þarft ekki að panta tíma í blóðrannsóknina en mikilvægt er að þú mætir fastandi.

Einstaklingur greiðir sjálfur fyrir blóðrannsóknina hjá Sameind, í samræmi við greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.

Hvar fer viðtalið fram?   

Viðtalið fer fram í Vinnuvernd - Holtasmára 1 / 8.hæð, 201 Kópavogur.

Hvað tekur viðtalið langan tíma?  

Hvert viðtal og yfirferð mælinga tekur um 20 mínútur.