
Áfengis- og lyfjapróf
Við bjóðum fyrirtækjum upp á áfengis- og lyfjapróf fyrir starfsfólk.
Þjónustan nær til skimunar á áfengi, lyfjum og/eða öðrum ávanabindandi efnum og er framkvæmd í nánu samráði við vinnustaði, með öryggi og velferð starfsfólks að leiðarljósi.
Notkun áfengis, lyfja eða annarra vímuefna getur haft veruleg áhrif á starfsgetu og öryggi á vinnustað. Slík notkun getur leitt til skertrar einbeitingar, minni framleiðni, aukinna fjarvista og aukinnar slysahættu. Starfsfólk sem er undir áhrifum áfengis, lyfja eða annarra vímuefna getur jafnframt skapað hættu fyrir samstarfsfólk, viðskiptavini og aðra á vinnustaðnum.
Markmið þjónustunnar er að styðja fyrirtæki við að viðhalda öruggu, heilbrigðu og ábyrgu vinnuumhverfi þar sem öryggi starfsfólks og viðskiptavina er í fyrirrúmi.