Handleiðsla fyrir stjórnendur
Stuðningur og þróun fyrir árangursríka stjórnendur
Stjórnendahandleiðsla er markviss og persónuleg leiðsögn sem styður stjórnendur í að þróa leiðtogahæfni sína, efla samskiptahæfni og takast á við áskoranir í starfi. Með faglegri handleiðslu fá stjórnendur tækifæri til að skoða eigin stjórnunarstíl, fá innsýn í styrkleika sína og vinna með aðferðir sem bæta árangur þeirra og starfsánægju.
Handleiðslan getur meðal annars snúið að:
- Leiðtogafærni og áhrifaríkri stjórnun
- Samskipta- og teymisvinnu
- Streitu og álagi í starfi
- Ákvarðanatöku og stefnumótun
- Jafnvægi milli vinnu og einkalífs
Með stjórnendahandleiðslu fá stjórnendur öruggt rými til að ræða áskoranir, fá hlutlæga ráðgjöf og þróa nýjar lausnir sem nýtast í daglegu starfi þeirra.

Handleiðsla fyrir hópa
Vinnuvernd býður upp á handleiðslu sálfræðings fyrir stjórnendur eða stjórnendahópa. Handleiðslan hefur þann tilgang að styrkja stjórnendur og/eða hópinn í að takast á við ýmsar áskoranir og erfiðleika í starfi. Handleiðslan getur verið tímabundin vegna sérstakra aðstæðna eða til lengri tíma til efla stjórnendur í krefjandi hlutverki.
Ávinningur af einstaklingshandleiðslu og hóphandleiðslu getur verið betri líðan, meira öryggi í starfi, meiri starfsánægja og betri samskipti og liðsheild. Áhersla er lögð á að stjórnandi þekki styrkleika sína og nýti þá sem best í þágu starfsins. Í handleiðslu geta stjórnendur öðlast nýja sýn á málefni og aukinn styrk til að takast á við verkefni sem koma upp í vinnuumhverfinu.
Stjórnendum gefst kostur á að ræða þau viðfangsefni sem þeir eru að takast á við hverju sinni undir handleiðslu sálfræðings. Viðfangsefni geta verið ýmist verið óundirbúin, þ.e ákveðið er í hverjum tíma hvað skal rætt, eða undirbúin, þar sem stjórnendur og sálfræðingur sammælast um viðfangsefni fyrirfram.
Í hóphandleiðslu er ákjósanlegast er að fjöldi sé á bilinu 2-7 manns og er fyrirkomulag handleiðslu sniðin að þörfum hvers hóps hverju sinni.

Sálfræðingar
Eftirfarandi sálfræðingar okkar sinna sálfræðiviðtölum og handleiðslu, hér gefst þér tækifæri að að kynnast þeim örlítið betur.
Áslaug Kristinsdóttir,
Sálfræðingur og ráðgjafi í mannauðsmálum
Áslaug útskrifaðist frá Háskóla Íslands
með cand.psych. gráðu árið 2007 og hefur síðan þá veitt stjórnendum fyrirtækja
ráðgjöf og handleiðslu varðandi félagslega og andlega áhættuþætti á vinnustað. Helstu
viðfangsefni eru greiningar á starfsumhverfi, sáttamiðlun, ráðgjöf vegna
samskiptavanda, stjórnendahandleiðsla, fyrirlestrar/námskeið og
einstaklingsstuðningur. Ásamt því hefur hún sinnt klínískri meðferð
einstaklinga.Áslaug hefur hlotið viðurkenningu sem sérfræðingur í vinnuvernd,
sótt ýmis námskeið og vinnustofur tengdu félagsleg og andlegu vinnuumhverfi og
lokið námi í sáttamiðlun.
Jakob Gunnlaugsson,
Sálfræðingur og ráðgjafi í mannauðsmálum
Jakob útskrifaðist sem sálfræðingur frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2010 með áherslu á vinnu- og klíníska sálfræði. Hann er teymisstjóri sálfræðinga hjá Vinnuvernd og hans helstu verkefni eru að veita stjórnendum ráðgjöf og handleiðslu varðandi sálfélagslegt vinnuumhverfi á vinnustöðum, vinnustaðagreiningar og einstaklingsviðtöl. Jakob hefur hlotið viðurkenningu sem sérfræðingur í vinnuvernd.
Sigurlaug Lilja Jónasdóttir,
Sálfræðingur og ráðgjafi í mannauðsmálum
Sigurlaug útskrifaðist með cand. psych. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2013 og hefur síðan þá starfað sem klínískur sálfræðingur. Hún hefur unnið á bæði Geðsviði Landspítala og Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins að sinna bæði einstaklings- og hópmeðferð, auk þess að hafa verið sérfræðingur og verkefnastjóri hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Hennar helstu verkefni hjá Vinnuvernd eru einstaklingsviðtöl, fyrirlestrar/námskeið og ýmiskonar ráðgjöf og handleiðsla.
Sigurlaug hefur sótt ýmis námskeið, ráðstefnur og vinnustofur tengdar andlegu- og félagslegu vinnuumhverfi.
Sigrún E. Arnardóttir,
Sálfræðingur
Sigrún er klínískur sálfræðingur en hún lauk meistaranámi frá Háskóla Íslands árið 2019. Hún sinnir einstaklingsráðgjöf og stuðningsviðtölum hjá Vinnuvernd ásamt sáttarmiðlun. Hún hóf störf hjá Vinnuvernd árið 2020. Sigrún hefur einnig lokið námi frá sáttarmiðlunarskólanum.
Sigrún er með starfsstöð bæði á Selfossi og Reykjavík.
