Ástandsskoðun II Ítarleg skoðun
Hættu að treysta á mælingar sem segja aðeins hálfa söguna – fáðu nákvæma innsýn í líkamssamsetningu þína og heilsu
Fáðu heilstæða mynd af heilsunni sem styður við markvissar heilsutengdar ákvarðanir í framtíðinni
Ástandsskoðun II er ítarleg heilsufarsmæling sem veitir þér nákvæma mynd af heilsunni. Með blóðrannsóknum, hjartalínuriti og DXA líkamssamsetningarmælingu færðu djúpa innsýn í líkamlegt ástand.
- Blóðþrýstingur
- Ítarleg blóðrannsókn*
- Hjartalínurit
- DXA líkamssamsetning
- DXA Beinþéttnimæling
- Niðurstöðuviðtal og ráðgjöf
- * Blóðrannsókn er innifalin í verði Ástandsskoðunar II. Ekki er um að ræða greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.
- Blóðþrýstingur
- Ítarleg blóðrannsókn*
- Hjartalínurit
- DXA líkamssamsetning
- Niðurstöðuviðtal og ráðgjöf
- * Blóðrannsókn er innifalin í verði Ástandsskoðunar II. Ekki er um að ræða greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.
Ítarleg innsýn í heilsu þína
Markmið
Markmið skoðunarinnar er að veita dýpri innsýn í heilsu og líkamsástand svo hægt sé að greina áhættuþætti fyrr og styðja við betri ákvarðanir um heilsu til framtíðar.
Með samspili mælinga, DXA skönnunar og ráðgjafar færðu skýra mynd af stöðu þinni og leiðbeiningar um næstu skref.
Fyrir hverja?
Ástandsskoðun II hentar sérstaklega fyrir þá sem:
- vilja fá nákvæmari mynd af líkamssamsetningu.
- vilja fylgjast betur með heilsu og líkamlegu ástandi.
- eru að hefja eða bæta lífsstíl, þjálfun eða þyngdarstjórnun.
- vilja fá faglega ráðgjöf byggða á ítarlegum mælingum.
Afhverju?
Ástandsskoðun II gefur ítarlega mynd af heilsu og líkamlegu ástandi. Með DXA greiningu og ítarlegum mælingum færðu skýra mynd af almennri heilsu þinni, líkamsamsetningu og undirliggjandi þáttum sem hafa áhrif á líðan og heilsu þína til framtíðar.
Þessar upplýsingar hjálpa þér að taka upplýstar ákvarðanir um heilsu, hreyfingu og lífsstíl.
Skoðunarþættir í Ástandsskoðun II
Blóðrannsókn
Ítarleg blóðrannsókn sem veitir gagnlegar upplýsingar um heilsu, efnaskipti og helstu áhættuþætti lífsstílstengdra sjúkdóma.
Í Ástandsskoðun II eru eftirfarandi þættir skoðaðir:
- Blóðstatus
- Ferritín (Járn)
- Langtímasykur HBA1C
- Fastandi blóðsykur
- Insúlín
- Kólesteról ( Heildarkólesteról, HDL, LDL og Þríglýseríðar)
- Natríum
- Kalíum
- Kreatín (Mat á nýrnastarfsemi)
- Biliriubin
- ASAT (Lifrarpróf)
- Fólat
- B12 – vítamín
- TSH (Skjaldkirtilshormón)
- Gamma GT
- D – vítamín
- PSA (fyrir karlmenn 45 ára og eldri)
DXA líkamssamsetning
DXA líkamssamsetningarrannsókn er nákvæm mæling sem sýnir samsetningu líkamsvefja. Rannsóknin er framkvæmd með DXA-skanna sem notar lágskammta röntgengeisla til að greina mismunandi vefjagerðir líkamans. Niðurstöðurnar gefa meðal annars upplýsingar um hlutfall líkamsfitu (innankviðarholsfitu og undirhúðfitu), vöðvamassa og dreifingu fitu í líkamanum. Slíkar mælingar geta verið gagnlegar til að fylgjast með heilsu, meta breytingar á líkamsamsetningu og styðja við markmið tengd heilsu og hreyfingu.
Hjartalínurit
Hjartalínurit er einföld rannsókn sem skráir innri rafvirkni hjartavöðva til að greina hjarta- og æðasjúkdóma. Með hjartalínuriti má greina margs konar vandamál eins og hjartsláttartruflanir, hjartadrep, blóðþurrð, raftruflanir o.fl. Ekki er hægt að staðfesta né útiloka kransæðasjúkdóm eingöngu með hjartalínuriti og þarf því að beita öðrum aðferðum við grun um slíkt. Þá greinir hjartalínurit hvorki hjartagalla né hjartalokusjúdóma.
Blóðþrýstingur
Einföld mæling sem gefur mikilvægar upplýsingar um heilsu hjarta og æða.
Hækkaður blóðþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma; kransæðasjúkdóma og heilablóðfalls.
Háþrýstingur er oft einkennalaus og getur því haft áhrif á einstaklinginn án þess að einkenni komi fram.
Niðurstöðuviðtal og ráðgjöf
Markmiðið er að veita skýra mynd af stöðunni, ræða mögulegar leiðir til að bæta heilsu og draga úr áhættu. Með samtali við heilbrigðisstarfsfólk fær einstaklingurinn betri skilning á eigin heilsu og tækifæri til að spyrja spurninga og fá faglegar ráðleggingar.
Áhættureiknir
Áhættureiknir Hjartaverndar metur áhættu einstaklings á að fá hjartasjúkdóm á næstu 10 árum og byggir á þeirri þekkingu sem Hjartavernd hefur aflað með öflugu vísindastarfi síðastliðin 50 ár. Aðferðafræðin og áhættumatið eru í samræmi við áhættumat í Evrópu (SCORE, European Society of Caridology). Niðurstaða sem sýnir að áhætta einstaklings sé lítil er þó ekki trygging fyrir að viðkomandi fái ekki hjartasjúkdóm þar sem aðeins er tekið tillit til helstu áhættuþátta sem þekktir eru nú á dögum (Hjartavernd, e.d.).
Ferlið
1
Senda beiðni
2
Blóðrannsókn
3
Aðrar mælingar
4
Viðtal og niðurstöður

Hvernig virkar ferlið?
Senda beiðni
Þú sendir inn beiðni um bókun í Ástandsskoðun II á heimasíðu okkar undir tímabókanir eða í gegnum hnappinn hér á síðunni. Hjúkrunarfræðingur mun í framhaldinu úthluta þér tíma í DXA mælingu og viðtal ásamt því að ganga frá beiðni fyrir blóðrannsókn. Þegar viðtalstíma hefur verið úthlutað færðu sendan staðfestingarpóst .
Hvert mæti ég í blóðrannsóknina?
Í kjölfar bókunar færð þú tilkynningu þegar blóðrannsóknarbeiðni til Sameindar hefur verið gerð, þar sem þú getur mætt í blóðrannsóknina. Sameind er staðsett á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu en frekari upplýsingar um staðsetningar getur þú séð á www.sameind.is. Þú þarft ekki að panta tíma í blóðrannsóknina en mikilvægt er að þú mætir fastandi og því ákjósanlegt að ljúka við blóðrannsóknina að morgni.
Einstaklingur greiðir sjálfur fyrir blóðrannsókn hjá Sameind en hér er ekki um að ræða greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.
Áætlað verð blóðrannsóknar er 27.510kr. Verð á blóðrannsóknar er samkvæmt gildandi verðskrá Sameindar og getur breyst í samræmi við breytingar á verðskrá þeirra.
Í framhaldi af blóðrannsókn
Að blóðrannsókn og DXA rannsókn lokinni mætir þú í viðtal hjá hjúkrunarfræðingi þar sem tekið er hjartalínurit, farið yfir niðurstöður blóðrannsóknar og DXA mælingar ásamt því að frekari íhlutun er ráðlögð út frá niðurstöðum. Læknir Vinnuverndar mun annast yfirferð blóðrannsókna og yfirfara hjartalínuritið. Ef frávik greinast í hjartalínuriti mun læknir hafa samband og ákveða frekari íhlutun.
Praktískar upplýsingar
Hvert mæti ég í DXA mælingu?
- Þú mætir í DXA rannsókn í húsnæði Hjartaverndar / Holtasmára 1 – 1. Hæð. Rannsókn þessi tekur um 15 mínútur og ekki er þörf á því að vera fastandi fyrir þessa rannsókn.
Hvar fer viðtalið fram?
- Niðurstöðuviðtal fer fram í Vinnuvernd - Holtasmára 1 / 8.hæð, 201 Kópavogur.
Hvað tekur viðtalið langan tíma?
- Hvert niðurstöðuviðtal ásamt yfirferð mælinga tekur um 30 mínútur.