Ítarleg skoðun
Fáðu nákvæma innsýn í líkamssamsetningu þína og heilsu
Ítarlegasta heilsufarsskoðun okkar
- Blóðþrýstingur
- Ítarleg blóðrannsókn*
- Hjartalínurit
- DXA líkamssamsetning
- Niðurstöðuviðtal og ráðgjöf
- Viðbótamælingar gegn auka gjaldi:
DXA beinþéttnimæling
PSA - fyrir karlmenn 45 ára og eldri
* Blóðrannsókn er innifalin í uppgefnu verði Ítarlegrar skoðunar. Ekki er um að ræða greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.
Fáðu heilstæða mynd af heilsunni sem styður við markvissar heilsutengdar ákvarðanir í framtíðinni
Ítarleg skoðun er heildræn heilsufarsmæling sem veitir þér nákvæma mynd af heilsunni. Með blóðrannsóknum, hjartalínuriti og DXA líkamssamsetningarmælingu færðu djúpa innsýn í líkamlegt ástand.
Nýttu þínar niðurstöður til jákvæðra breytinga í framtíðinni
Markmið
Markmið skoðunarinnar er að veita skýra og gagnlega mynd af heilsufarsstöðu þinni svo hægt sé að bregðast við tímanlega ef þörf er á.
Með skoðuninni færðu:
- heildstæða yfirsýn yfir helstu heilsuþætti.
- nákvæmar niðurstöður úr mælingum og blóðrannsóknum.
- ráðgjöf frá heilbrigðisstarfsfólki
- leiðbeiningar um mögulegar lífsstílsbreytingar
- betri grunn til að fylgjast með heilsu þinni til framtíðar.
Fyrir hverja?
Ítarleg skoðun hentar einstaklingum sem vilja fá ítarlega og heildstæða mynd af heilsu sinni.
Ítarleg skoðun hentar sérstaklega fyrir þá sem:
- vilja fá nákvæmari mynd af líkamssamsetningu.
- vilja fylgjast betur með heilsu og líkamlegu ástandi.
- eru að hefja eða bæta lífsstíl, þjálfun eða þyngdarstjórnun.
- vilja fá faglega ráðgjöf byggða á ítarlegum mælingum.
Afhverju?
Ítarleg skoðun gefur ítarlega mynd af heilsu og líkamlegu ástandi. Með DXA greiningu og ítarlegum mælingum færðu skýra mynd af almennri heilsu þinni, líkamsamsetningu og undirliggjandi þáttum sem hafa áhrif á líðan og heilsu þína til framtíðar. Þessar upplýsingar hjálpa þér að taka upplýstar ákvarðanir um heilsu, hreyfingu og lífsstíl.
Ítarleg skoðun sameinar blóðrannsóknir, hjartamælingar og DXA mælingar sem gefa nákvæmar upplýsingar um hjartaheilsu, efnaskipti og líkamsamsetningu.
Þessar upplýsingar hjálpa þér að taka upplýstar ákvarðanir um heilsu, hreyfingu og lífsstíl.
Skoðunarþættir í Ítarlegri skoðun
Blóðrannsókn
Ítarleg blóðrannsókn sem veitir gagnlegar upplýsingar um heilsu, efnaskipti og helstu áhættuþætti lífsstílstengdra sjúkdóma.
Í Ítarlegri skoðun eru eftirfarandi þættir skoðaðir:
- Blóðstatus
- Ferritín (Járn)
- Langtímasykur HBA1C
- Fastandi blóðsykur
- Insúlín
- Kólesteról ( Heildarkólesteról, HDL, LDL og Þríglýseríðar)
- Natríum
- Kalíum
- Kreatín (Mat á nýrnastarfsemi)
- Biliriubin
- ASAT (Lifrarpróf)
- Fólat
- B12 – vítamín
- TSH (Skjaldkirtilshormón)
- Gamma GT
- D – vítamín
Blóðþrýstingur
Einföld mæling sem gefur mikilvægar upplýsingar um heilsu hjarta og æða.
Hækkaður blóðþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma; kransæðasjúkdóma og heilablóðfalls.
Háþrýstingur er oft einkennalaus og getur því haft áhrif á einstaklinginn án þess að einkenni komi fram.
DXA beinþéttnimæling
DXA beinþéttnimæling er rannsókn sem metur styrk og þéttleika beina. Hún er framkvæmd með DXA-skanna sem notar lágskammta röntgengeisla til að mæla magn steinefna í beinum. Niðurstöðurnar gefa upplýsingar um beinheilsu og geta hjálpað til við að meta hættu á beinþynningu og beinbrotum. Rannsóknin er einföld, fljótleg og notuð til að fylgjast með breytingum á beinþéttni yfir tíma.
DXA líkamssamsetning
DXA líkamssamsetningarrannsókn er nákvæm mæling sem sýnir hvernig líkaminn skiptist í fitu, vöðva og bein. Rannsóknin er framkvæmd með DXA-skanna sem notar lágskammta röntgengeisla til að greina mismunandi vefjagerðir líkamans. Niðurstöðurnar gefa meðal annars upplýsingar um hlutfall líkamsfitu, vöðvamassa og dreifingu fitu í líkamanum. Slíkar mælingar geta verið gagnlegar til að fylgjast með heilsu, meta breytingar á líkamsamsetningu og styðja við markmið tengd heilsu og hreyfingu.
Hjartalínurit
Hjartalínurit er einföld rannsókn sem skráir innri rafvirkni hjartavöðva til að greina hjarta- og æðasjúkdóma. Með hjartalínuriti má greina margs konar vandamál eins og hjartsláttartruflanir, hjartadrep, blóðþurrð, raftruflanir o.fl. Ekki er hægt að staðfesta né útiloka kransæðasjúkdóm eingöngu með hjartalínuriti og þarf því að beita öðrum aðferðum við grun um slíkt. Þá greinir hjartalínurit hvorki hjartagalla né hjartalokusjúkdóma.
Niðurstöðuviðtal og ráðgjöf
Markmiðið er að veita skýra mynd af stöðunni og ef þörf er á, ræða mögulegar leiðir til að bæta heilsu og draga úr áhættu. Með samtali við heilbrigðisstarfsfólk fær einstaklingurinn betri skilning á eigin heilsu og tækifæri til að spyrja spurninga og fá faglegar ráðleggingar.
PSA Mæling 45+
PSA mæling (Prostate-Specific Antigen) er blóðrannsókn sem mælir magn PSA próteins í blóði. PSA er framleitt í blöðruhálskirtlinum hjá körlum og er notað m.a. til að:
- Skima fyrir blöðruhálskirtilskrabbameini.
- Fylgjast með þróun hjá þeim sem eru með sjúkdóm.
- Meta aðrar ástæður fyrir einkennum frá þvagfærum.
Áhættureiknir
Áhættureiknir Hjartaverndar metur áhættu einstaklings á að fá hjartasjúkdóm á næstu 10 árum og byggir á þeirri þekkingu sem Hjartavernd hefur aflað með öflugu vísindastarfi síðastliðin 50 ár. Aðferðafræðin og áhættumatið eru í samræmi við áhættumat í Evrópu (SCORE, European Society of Caridology). Niðurstaða sem sýnir að áhætta einstaklings sé lítil er þó ekki trygging fyrir að viðkomandi fái ekki hjartasjúkdóm þar sem aðeins er tekið tillit til helstu áhættuþátta sem þekktir eru nú á dögum (Hjartavernd, e.d.).
Ferlið
1
Senda beiðni
2
Blóðrannsókn
3
Aðrar mælingar
4
Viðtal og niðurstöður

Hvernig virkar ferlið?
Senda beiðni
Þú sendir inn beiðni um bókun í Ítarlega skoðun á heimasíðu okkar undir tímabókanir eða í gegnum hnappinn hér á síðunni. Hjúkrunarfræðingur mun í framhaldinu úthluta þér tíma í DXA mælingu og viðtal ásamt því að ganga frá beiðni fyrir blóðrannsókn. Þegar viðtalstíma hefur verið úthlutað færð þú sendan staðfestingarpóst um tímabókun.
Hvert mæti ég í blóðrannsóknina?
Í kjölfar bókunar færð þú tilkynningu þegar blóðrannsóknarbeiðni til Sameindar hefur verið gerð, þar sem þú getur mætt í blóðrannsóknina. Sameind er staðsett á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu en frekari upplýsingar um staðsetningar getur þú séð á www.sameind.is. Þú þarft ekki að panta tíma í blóðrannsóknina en mikilvægt er að þú mætir fastandi og því ákjósanlegt að ljúka við blóðrannsóknina að morgni.
Í framhaldi af blóðrannsókn
Að blóðrannsókn og DXA rannsókn lokinni mætir þú í viðtal hjá hjúkrunarfræðingi þar sem tekið er hjartalínurit, farið yfir niðurstöður blóðrannsóknar og DXA mælingar ásamt því að frekari íhlutun er ráðlögð út frá niðurstöðum. Læknir Vinnuverndar mun annast yfirferð blóðrannsókna og yfirfara hjartalínuritið. Ef frávik greinast í hjartalínuriti mun læknir hafa samband við þig og ákveða frekari íhlutun.
Praktískar upplýsingar
Hvert mæti ég í DXA mælingu?
- Þú mætir í DXA rannsókn í húsnæði Hjartaverndar / Holtasmára 1 – 1. Hæð. Rannsókn þessi tekur um 15 mínútur og ekki er þörf á því að vera fastandi fyrir þessa rannsókn.
Hvar fer viðtalið fram?
- Viðtalið fer fram í Vinnuvernd - Holtasmára 1 / 8.hæð, 201 Kópavogur.
Hvað tekur viðtalið langan tíma?
- Hvert viðtal og yfirferð mælinga tekur um 30 mínútur.