Skip to Content

Inflúensubólusetning 


Kæri viðskiptavinur


Nú eru inflúensubólusetningar fyrir veturinn 2025-2026 að hefjast hjá okkur í Vinnuvernd. 

Ef þú hefur áhuga á að bóka heimsókn frá hjúkrunarfræðingum okkar á þinn vinnustað, þá hvetjum við þig til að fylla út beiðni hér að neðan fyrir þinn vinnustað. 

Í fyrra kostaði hver sprauta 3.995kr, við gerum ráð fyrir að verðið sé sambærilegt í ár hjá okkur,  að því sögðu höfum við ekki ennþá fengið staðfestingu á verði frá okkar birgja og getum því miður ekki gefið upp fast verð að svo stöddu. 

"Vinnuvernd er framsækið þjónustu- og ráðgjafafyrirtæki sem stuðlar að heilbrigði einstaklinga og aukinni vellíðan á vinnustað"

Ferlið í skrefum

1

Fylla út og senda inn beiðni

Yfirmaður / tengiliður senda beiðni inn eftir að hafa klárað að fylla inn þær upplýsingar sem óskað er eftir hér að neðan, með því að smella á "senda beiðni" hnappinn neðst á síðunni.

2

Úthlutun dagsetningar og tíma

Þinn vinnustað er komin á skrá hjá okkur og um leið og við fáum frekari upplýsingar um komu bóluefnisins til landsins sendum við  tillögu að tíma úthlutun og frekari upplýsingum um framkvæmd.

3

Bólusetning staðfest

Yfirmaður / tengiliður fær tilkynningu um staðfestingu á tímabókun, ásamt frekari hagnýtum upplýsingum varðandi bólusetninguna fyrir starfsfólk. 

4

Bólusetning framkvæmd

Hjúkrunarfræðingur frá Vinnuvernd mætir á þinn vinnustað að bólusetja starfsfólk.