Skip to Content

Heilbrigðisskoðun flugliða felur í sér mat á andlegu og líkamlegu heilbrigði umsækjanda þ.m.t. blóðþrýstingsmælingu, heyrnarprófi, þvagprufu og hjartalínuriti.  

Þjónustu- og öryggisliðar skulu vera andlega og líkamlega heilbrigðir til að geta sinnt störfum sínum af fullu öryggi.

Fjölmörg veikindi og lyf hafa áhrif á það hvort viðkomandi standist skoðun og því mikilvægt að heilbrigðisskýrsla sé rétt útfyllt. Dæmi um lyf sem koma í veg fyrir að heilbrigðisvottorð sé gefið út eru lyf til meðhöndlunar á kvíða- og þunglyndi og öll hugbreytandi lyf m.a. ADHD lyf. 

Umsækjandi skal fylla út heilbrigðisskýrslu þar sem greina skal frá öllum núverandi og fyrri veikindum auk lyfjasögu. Gefi umsækjandi rangar eða villandi upplýsingar í sambandi við umsóknina, eða ónógar upplýsingar varðandi sjúkrasögu, geta flugmálayfirvöld neitað um eða dregið til baka heilbrigðisvottorð sem þegar hefur verið gefið út. Auk þess kunna að eiga við önnur viðurlög skv. landslögum.

Endanleg ákvörðun um hæfi út frá heilbrigðiskröfum umsækjenda er í höndum fluglæknis.  Við bendum þér á að hafa samband við Icelandair ef spurningar vakna út frá niðurstöðu heilbrigðisskoðunar. Niðurstaða heilbrigðisskoðunar er endanleg af hálfu fluglæknis Vinnuverndar.

Vinsamlegast athugið, fylla þarf út eyðublað Samgöngustofu fyrir komu í tímabókun (hægt að hlaða niður því með því að smella á takka hér að neðan) og mætið með útprentað eða senda blaðið rafrænt á [email protected] að lágmarki 1 degi fyrir bókaðan tíma. 

Eyðublaðið er útfyllanlegt á rafrænu formi. Ef upp koma einhver vafaatriði þá er mögulegt að fylla þau út í skoðuninni.

Eyðublað Samgöngustofu  


 ÁFRAM Á BÓKUNARSÍÐU