Námskeið um gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði
Áhættumat
Fyrir hverja?
Námskeiðið eru sérstaklega ætlað ábyrgðaraðilum vinnuverndarstarfs á vinnustaðnum s.s. öryggisfólki ásamt starfsfólki mannauðs og stjórnendum.
Um hvað er námskeiðið?
Markmið námskeiðs er að þátttakendur öðlist þekkingu á gerð áætlunar um heilbrigði og öryggi á vinnustað. Samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (46/1980) ber atvinnurekandi ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað.
Á námskeiðinu er farið yfir skipulag vinnuverndarstarfs s.s. hlutverk öryggisnefndar og ábyrgðaraðila vinnuverndarstarfsins. Fjallað er um helstu málaflokka s.s. hávaða, lýsingu, inniloft, efni og efnahættur, líkamlega áhættuþætti, félagslega og andlega áhættuþætti, , atvinnusjúkdóma, vinnuslys og slysavarnir og notkun persónuhlífa. Þá er fjallað um lög og reglugerðir þannig að þátttakendur geti sjálfir aflað sér betur upplýsinga og unnið með.
Sérstök áhersla er lögð á áhættumat starfa, hvað það innifelur og hvernig matið er unnið. Um er að ræða fyrirlestur, umræður og hópavinnu.
Kennd er einföld og markviss aðferð í tengslum við gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði en megin þættir hennar fela í sér áhættumat starfa og áætlun um heilsuvernd og öryggi.
Ávinningur
Aukin þekking á vinnuverndarmálum vinnustaðar auðveldar þeim að hefja vinnu við gerð áætlunar og starfa skv. skyldu vinnuverndarlaga 46/1980. Vinnan gefur tækifæri á að vinna að bættu vinnuumhverfi og líðan á vinnustað með markvissum hætti.
Markmið námskeiðs er að þátttakendur séu betur upplýstir um áætlun um öryggi og heilbrigði og framkvæmd áhættumats á vinnustað og geti nýtt sér vinnuna með beinum hætti í sínu fyrirtæki.
Uppbygging
Námskeiðið sem stendur í þrjá tíma samanstendur af fyrirlestri, umræðum og hópavinnu.

Starfslokanámskeið
Fyrir hverja?
Námskeiðið er ætla fólki sem nálgast eftirlaun eða er tiltölulega nýkomið á eftirlaun. Við hvetjum fólk til að sækja námskeiðið frekar fyrr en seinna til þess að það geti undirbúið tímamótin vel.
Um er fjallað?
Fjallað er um þætti sem snúa að fjármálum, t.d. lífeyrir, Tryggingastofnun Íslands og Sjúkratryggingar Íslands en einnig um hvernig hægt sé að eiga sem innihaldsríkust efri ár, t.d. með umfjöllun um hlutverkabreytingu, markmið og félagsstarf. Þá er einnig fjallað um almenna heilsu ásamt næringu og hreyfingu fyrir eldra fólk.
Ávinningur
• Aukin þekking ofangreindum fjármálaþáttum getur leitt til fjárhagslegs ávinnings.
• Undirbúningur og umfjöllun um sálfélagslega þætti í kringum þessi tímamót getur stuðlað að því að fólk njóti betur tímans um og eftir starfslok. Þá hefur þátttakendum oft þótt gagnlegt og gott að njóta samveru annarra þátttakanda sem standa á sömu tímamótum í sínu lífi.
• Lærdómur um félagsstarf, næringu og hreyfingu eldra fólks getur bætt andlega og líkamlega heilsu.
Uppbygging
Námskeiðið er tvo daga.
• Staðnámskeiðin eru kennd í Rafmennt, Stórhöfða 27 í Reykjavík, á milli kl. 9:00-12:30.
Nánari upplýsingar og skráningu má finna hér:

