Skip to Content

Sumarfrí - Gefðu þér svigrúm til að hlaða batteríin

Sumafrí 

Gefðu þér svigrúm til að hlaða batteríin

Sigurlaug Lilja Jónasdóttir

Sálfræðingur

Sumarfrí á að vera tækifæri til að hlaða orkuna með góðri hvíld og næra líkama og sál. Til þess að fríið nýtist sem best er þó mikilvægt að huga ekki aðeins að fríinu sjálfu, heldur líka að því hvernig við förum inn í það.

Það er algengt að fólk sem er undir miklu álagi í starfi finni fyrir aukinni streitu þegar sumarfríið nálgast. Margir upplifa pressu um að þurfa að klára allt áður en þeir fara í frí, tæma pósthólfið, loka öllum lausum endum og sjá til þess að ekkert bíði þegar þeir snúa aftur. Þessi hugsun er skiljanleg, en hún getur líka orðið til þess að síðustu dagarnir fyrir frí verða óþarflega þungir.

Oft gerist það að fólk ofbókar sig rétt fyrir sumarfrí. Fundir raðast inn, verkefnalistar lengjast og vinnudagarnir verða bæði langir og krefjandi. Markmiðið er að komast frá hreinu borði, en niðurstaðan verður stundum sú að streitan eykst einmitt þegar líkaminn og hugurinn ættu að vera farin að hægja á sér.

Það er mikilvægt að minna sig á að oftast þarf ekki að klára allt fyrir fríið. Yfirleitt eru einhver verkefni sem mega bíða. Það er freistandi að ljúka öllu, svara öllum tölvupóstum og skilja ekkert eftir, en ef það kostar að við keyrum okkur upp í mikla streitu rétt áður en fríið hefst, þá erum við að vinna gegn tilgangi frísins.

Þegar við komum örmagna inn í sumarfríið getur tekið langan tíma að ná sér niður. Fyrstu dagarnir, jafnvel fyrsta vikan, geta farið í að jafna sig eftir álagið í stað þess að njóta hvíldar, næringar og samveru. Þá verður fríið ekki sú endurhleðsla sem það átti að vera.

Betra getur verið að velja meðvitað hvað þarf raunverulega að klárast og hvað má bíða þar til komið er til baka. Það getur líka verið hjálplegt að segja nei við nýjum verkefnum síðustu dagana fyrir frí, ef svigrúm er til þess. Að skilja eitthvað eftir er ekki merki um skipulagsleysi. Það getur þvert á móti verið merki um heilbrigða forgangsröðun.

Gott sumarfrí byrjar áður en fríið hefst. Með því að hægja aðeins á, draga úr fundum og gefa sér rými til að ljúka vinnunni á rólegri hátt, aukum við líkurnar á að fríið nýtist betur. Þá fær líkaminn og hugurinn raunverulegt tækifæri til að hlaða batteríin.

Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga

Veldu hvað skiptir raunverulega máli að klára fyrir frí. Passaðu að fylla ekki alla síðustu dagana af fundum. Finndu verkefni sem mega bíða og skipuleggðu fyrsta vinnudaginn eftir frí þannig að hann sé ekki fullbókaður. Það gefur þér svigrúm til að komast aftur inn í verkefnin, skoða það sem var skilið eftir og byrja aftur af yfirvegun.

Og síðast en ekki síst: reyndu að hægja á og draga úr álagi nokkrum dögum áður en fríið hefst. Það er ekki leti. Það er góð forvörn.