Skip to Content


FRÍSK & FÆR

Add to calendar:
Getum við gert betur í að fyrirbyggja óvinnufærni, efla heilsu á vinnustöðum og draga úr fjarvistum?

Vinnuvernd stendur fyrir áhugaverðri hálfsdags ráðstefnu um starfshæfni, veikindi og vinnustaðaheilsu í hátíðarsal Grósku þann 3. september 2026 milli kl. 8:30–12:30.

Yfirskrift ráðstefnunnar er FRÍSK & FÆR og þar verður sjónum beint að einu mikilvægasta viðfangsefni vinnumarkaðarins í dag: 

"Hvernig getum við stutt betur við heilsu starfsfólks, brugðist markvisst við veikindum og skapað raunhæfar leiðir til að efla starfshæfni og draga úr fjarvistum".

Frítt er á ráðstefnuna fyrir alla viðskiptavini Vinnuverndar og hvetjum við ykkur til að skoða dagskránna hér að neðan og skrá ykkur á viðburðinn. Takmarkað pláss er í boði.

Eftirtaldir aðilar munu koma fram á ráðstefnunni

Á ráðstefnunni koma fram öflugir fyrirlesarar sem nálgast viðfangsefnið frá ólíkum sjónarhornum. Hér getur þú kynnt þér hluta af þeim einstaklingum sem munu koma fram á ráðstefnunni og fengið smá innsýn inn í erindi þeirra. 


Ólöf Skaftadóttir 

Fjölmiðlakona og almannatengill

Verður fundarstjóri ráðstefnunnar og leiðir umræður með fyrirlesurum og þátttakendum ásamt því að stýra pallborðsumræðum með helstu hagsmunaðilum úr ólíkum áttum vinnumarkaðarins.


Anna Steinsen

Fyrirlesari, þjálfari, stjórnendamarkþjálfi, heilsumarkþjálfi og jógakennari

Fjallar um breytt viðhorf ólíkra kynslóða til vinnu og vinnumarkaðarins og hvernig vinnustaðir geta mætt nýjum væntingum og breyttum áherslum.


Áslaug Kristinsdóttir & Ása Elísa Einarsdóttir

Sálfræðingur og mannauðsráðgjafi / Sérfræðingur og trúnaðarlæknir hjá Vinnuvernd

Munu þær beina sjónum að mikilvægi þess að greina hvar vandinn raunverulega liggur þegar unnið er með veikindi, starfsgetu og endurkomu til vinnu. Báðar hafa þær mikla reynslu í störfum með einstaklingum sem eru frá vinnu vegna veikinda.


Jóhanna Birna Bjartmannsdóttir

Stofnandi og framkvæmdastjóri HARTS

Fjallar um hvernig vinnustaðir geta stutt starfsfólk með ólíkar líkamlegar eða andlegar áskoranir og skapað aðstæður þar sem fólk getur sinnt starfi sínu þrátt fyrir tímabundnar eða langvarandi takmarkanir.


Lind Einarsdó​ttir & Dröfn Gunnarsdóttir

Mannauðsstjóri / mannauðsfulltrúi Hafnarfjarðar

Segja frá þeirri vinnu sem hefur farið fram hjá Hafnarfjarðarbæ til að ná niður langtímaveikindum og hvaða áherslur hafa reynst gagnlegar í þeirri vegferð ásamt því hverju þau eru að vinna að í dag í tengslum við skammtímafjarveru.


Sigríður Indriðadóttir

Stjórnendaráðgjafi, fyrirlesari og samskiptaþjálfar

Fjallar um samskiptavanda á vinnustöðum og hvernig óleyst vandamál geta haft áhrif á líðan, veikindi og starfsgetu.


Valgeir Sigurðsson

Eigandi og yfirmaður þjónustusviðs Vinnuverndar

Mun opna ráðstefnuna með hugleiðingu um hvert samfélagið er að stefna og hvernig við getum stutt betur við heilsu starfsfólks og skapað raunhæfar leiðir til að efla starfshæfni og draga úr fjarvistum. 

Pallborðsumræð​ur


Auk erinda verða umræður með þátttöku gesta í sal og ráðstefnunni lýkur með pallborðsumræðum þar sem hagsmunaaðilar úr ólíkum áttum atvinnulífsins koma saman til að ræða ábyrgð, áskoranir og tækifæri þegar kemur að heilsu, starfshæfni og fjarvistum. Þar verður sjónum beint að því hvernig vinnustaðir, stjórnvöld, atvinnurekendur, stéttarfélög og aðrir lykilaðilar geta unnið betur saman að lausnum sem styðja við fólk, vinnustaði og samfélagið í heild.

Nánari upplýsingar um þátttakendur í pallborði verða kynntar síðar.

Hagnýtar upplýsingar 

hér er að finna aðrar hagnýtar upplýsingar tengdar ráðstefnunni. 


Undanfarna mánuði hefur umræða um fjarvistir, veikindarétt og álag á vinnumarkaði verið áberandi. Minna hefur þó farið fyrir samtali um framkvæmdina sjálfa: hvernig vinnustaðir, stjórnendur, mannauðsfólk og fagaðilar geta unnið saman að því að fyrirbyggja óvinnufærni, styðja starfsfólk í veikindum og auðvelda farsæla endurkomu til vinnu.

Á ráðstefnunni verður fjallað um spurningar á borð við:

  • Hvernig er best að vinna með veikindi á vinnustöðum?
  • Hvar liggja helstu áskoranirnar í dag?
  • Hvernig má greina vandann fyrr og bregðast betur við?
  • Hvaða hlutverki gegna stjórnendur, mannauðsfólk, heilbrigðisstarfsfólk, stéttarfélög og atvinnurekendur?
  • Og hvað getum við gert betur — saman?

Ráðstefnan er ætluð mannauðsfólki, stjórnendum, heilbrigðisstarfsfólki, atvinnurekendum, fulltrúum stéttarfélaga og sveitarfélaga, ráðgjöfum og öllum þeim sem láta sig varða heilsu, vellíðan og starfshæfni á vinnumarkaði.

Markmiðið er að skapa faglegan vettvang fyrir samtal, reynslumiðlun og nýjar nálganir í málaflokki sem snertir bæði einstaklinga, vinnustaði og samfélagið í heild.

Með ráðstefnunni vill Vinnuvernd leggja sitt af mörkum til umræðu sem byggir á þekkingu, reynslu og lausnamiðaðri nálgun — með það að leiðarljósi að fleiri geti verið frísk og fær til þátttöku á vinnumarkaði.