Næstu námskeið
Eftirfarandi dagsetningar eru komnar fyrir næstu námskeið. Hafi fyrirtæki óskir um sérnámskeið fyrir starfsmannahóp má hafa samband í gegnum hnappinn hér að neðan. Lágmarksfjöldi þátttakenda fyrir sérnámskeið eru á bilinu 15-20 einstaklingar.
Staðnámskeið
- Þriðjudaginn 10.mars & fimmtudaginn 12.mars 2026 - staðnámskeið
- Þriðjudaginn 14.apríl & fimmtudaginn 16.apríl 2026 - staðnámskeið
- Staðnámskeið er kennt tvo daga frá kl. 9:00-12:30
- Þegar um staðnám er að ræða fer námskeiðið fram í Rafmennt, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík.
Fjarnámskeið
- Þriðjudaginn 3.mars & fimmtudaginn 5.mars 2026 - fjarnámskeið
Fjarnámskeið er kennt tvo daga frá kl. 9:00-12:00 hvorn daginn fyrir sig en yfirleitt er yfirferð á efninu aðeins hraðari á fjarnámskeiðum þar sem kaffipásurnar taka styttri tíma.
Þegar um fjarnám er að ræða fer námskeiðið fram í gegnum TEAMS fjarfundarhugbúnað.

Sérnámskeið fyrir vinnustaðinn þinn
Lágmarks þátttaka fyrir slíku námskeiði er 15 einstaklingar og er það grunngjaldið sem tekið er fyrir námskeiðið en þá heldur vinnustaðurinn utan um skráningu og skaffar húsnæði.
Umsjónarmaður námskeiðs
Magnea Einarsdóttir
Fyrrum skólastjóri á eftirlaunum
Magnea lauk kennaraprófi frá KHÍ 1990. Eftir að hafa starfað sem bæði umsjónakennari og aðstoðarskólastjóri lauk hún Diplomu í starfsmannastjórnun frá EHÍ 2005 en þaðan lá leiðinn í Mastersnám í Mannauðsstjórnun við HÍ veturinn 2005 – 2006.
Magnea starfaði sem kennari, námsráðgjafi og félagsstarfskennari við Hólabrekkuskóla frá 1990 – 2000. Var aðstoðarskólastjóri við Hólabrekkuskóla frá 2000 – 2006. Var skólastjóri í Digranesskóla 2006 – 2009, í Álfhólsskóla 2009 – 2010 og í Snælandsskóla 2011 – 2023.
Áhugamálin eru heimilið, fjölskyldan, góð vinátta, skíði og almenn útivist. Samhliða vinnu hefur hún setið í stjórnum tengdum íþrótta- og félagsstarfi og má þar einna helst nefnda stjórn íþróttafélagsins Gerplu og Fimleikasambands Íslands.
